„Ekki hagstætt fyrir sjómannaþjóð“

„Það hefur alla tíð verið áhugi á því hjá Eimskipafélaginu að skrá skip félagsins á Íslandi. Félagið hefur þrýst á það í mörg ár að af stað færi vinna til þess að gera það mögulegt. Það sem stendur í vegi fyrir því og gerir það að verkum að við óttumst að það sé of seint er sú staðreynd að Ísland hefur samþykkt evrópskar reglugerðir sem þýðir að við getum í raun ekki breytt reglunum okkar hérna nema að brjóta í bága við þær. Það er einfaldlega ástæðan fyrir því að skip eru skráð annars staðar.“ Þetta sagði Ólafur Hand, þáverandi upplýsingafulltrúi Eimskips, í samtali við mbl.is 19. ágúst 2014.

Tilefni viðtalsins var koma nýs flutningaskips Eimskips, Lagarfoss, til landsins en skipið var þá skráð í Antígva og Barbúda. Skip Samskipa væru hins vegar skráð í Færeyjum og eru þau það enn. Ólafur sagði Eimskip vera að skoða Færeyjar sem hefðu „aðlagað sínar reglur að þeim stöðum þar sem þær eru samkeppnishæfastar.“ Flutningaskip Eimskipa hafa undanfarin ár verið skráð í Færeyjum en eins og segir í skýrslum fyrir stjórnvöld geta Færeyingar boðið upp á betri kjör verandi ekki aðilar að EES-samningnum eins og við Íslendingar og fyrir vikið ekki bundnir af umræddum reglum.

Haft var enn fremur eftir Ólafi að framan af hafi umræðan um skráningu íslenzkra kaupskipa hér á landi snúist um það hvort áhafnirnar væru Íslendingar eða ekki. „En núna snýst þetta einkum um þessar Evrópureglur og við erum bara orðin ansi tengd Evrópusambandinu varðandi alls kyns regluverk sem er í raun ekkert hagstætt fyrir okkur sem sjómannaþjóð.“ Benti hann á það að útgerð kaupskipa væri gjörólík til að mynda útgerð fiskiskipa sem þyrftu að vera skráð í ákveðnum löndum til að mynda til þess að fá úthlutað aflaheimildum. Kaupskip gætu í raun verið skráð hvar sem væri.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Frá Sundahöfn. Eigandi: Quintin Soloviev – Attribution 4.0 International)