Snýst um ávinning ESB en ekki okkar

Miðað við málflutning Vilhjálms Egilssonar, fyrrverandi alþingismanns og Evrópusambandssinna til áratuga, í samtali við Dv.is á nýársdag snýst innganga í Evrópusambandið ekki fyrst og fremst um mögulegan efnahagslegan ávinning Íslands af því að ganga þar inn heldur það hvað við Íslendingar getum fært sambandinu. Sem sagt ávinning þess en ekki okkar.

„Ef þú ert að hugsa bara um peninga og viðskipti og það allt saman, eða ef þú ert að hugsa um þessa stóru mynd þá sérðu bara það að þær þjóðir sem hafa komið inn í Evrópusambandið, Bretar svona stærsta dæmið, þar sem markaðsmálin og aðgangur að markaðnum og allt sem að snerist um peninga var aðalmálið. Að þá bara leið þeim mjög illa og fóru út.“

Vilhjálmur sagði Evrópusambandið aðallega snúast um frið, lýðræði og mannréttindi en ekki viðskipti og efnahagsmál eins og Evrópusambandssinnar hafa áður haldið fram. Vafalaust vegna vaxandi hnignunar sambandsins sem efnahagssvæðis. Raunar minntist hann einmitt á það að Þýzkalandi og Frakklandi, stærstu efnahagsveldum þess, gengi ekki vel.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)