Hvernig verður með bókun 35?

Fyrir jól keyrði meirihluti stjórnarflokkanna í utanríkismálanefnd Alþingis frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 við EES-samninginn úr nefndinni í ágreiningi við minnihlutann. Reyndar með stuðningi Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hinn fulltrúi flokksins, Diljá Mist Einarsdóttir, var erlendis fyrir hönd þingsins og var ekki mögulegt að kalla inn varamann vegna fyrirvarans.

Við tekur önnur umræða um málið á Alþingi og er viðbúið að hún muni taka umtalsverðan tíma. Hvenær það verður liggur ekki fyrir og á eftir að koma í ljós. Miðað við þær skoðanakannanir sem gerðar hafa verið um málið er ljóst að yfirgnæfandi meirihluti stuðningsmanna stjórnarandstöðuflokkanna þriggja, Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins, er andvígur frumvarpinu og hefur andstaðan farið vaxandi. Þá er ljóst að margir hafa sterkar skoðanir á málinu.

Forgangur regluverks ESB

Verði frumvarp Þorgerðar að lögum verður til ný forgangsregla í íslenzkum rétti. Ólíkt þeim forgangsreglum sem þegar eru fyrir hendi þegar almenn lagasetning er annars vegar, þar sem yngri lög frá Alþingi hafa forgang gagnvart þeim sem eldri eru og sértækari lög gagnvart almennari, mun nýja reglan miðast við það eitt og aðeins eitt að umrædd löggjöf feli í sér innleiðingu hér á landi á regluverki sem við fáum frá Evrópusambandinu í gegnum aðild Íslands að EES-samningnum.

Með lögleiðingu EES-samningsins fyrir rúmum 30 árum síðan var bókun 35 innleidd sem lögskýringaregla en ekki forgangsregla vegna þess að annað hefði kallað á breytingu á fullveldisákvæði stjórnarskrár lýðveldisins. Ljóst þótti að ef fara þyrfti í það að breyta henni tækist ekki að tryggja nægjanlegan stuðning á Alþingi fyrir aðildinni að samningnum. Þá einkum í röðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Fyrir vikið var staðið að málum með þeim hætti sem gert var.

Varnaðarorð lögspekinga

Tæpum 20 árum síðar óskaði Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) eftir upplýsingum um það hvernig staðið hefði verið að innleiðingu bókunar 35. Útskýrðu íslenzk stjórnvöld málið og fóru samskipti fram um málið þar til ESA tilkynnti þá niðurstöðu sína að ekki hefði verið staðið rétt að þeim málum og hótaði samningsbrotamáli fyrir EFTA-dómstólnum. Stjórnvöld héldu uppi vörnum í málinu allt þar til Þórdís Kolbrún varð utanríkisráðherra 2021 og sneri þá algerlega við blaðinu í þeim efnum.

Virtir lögspekingar hafa varað við samþykkt frumvarpsins þar sem það fari í bága við fullveldisákvæði stjórnarskrár lýðveldisins. Þar á meðal Stefán Már Stefánsson, lagaprófessor emeritus og helzti sérfræðingur landsins í Evrópurétti, og Jón Steinar Gunnlaugsson, fyrrverandi hæstaréttardómari. Þá hefur Markús Sigurbjörnsson, fyrrverandi forseti Hæstaréttar, áður bent á það að staðið hafi verið að málum í upphafi með þeim hætti sem gert var vegna fullveldisákvæðisins.

Miðflokkurinn aftur einn?

Fróðlegt verður því að sjá hvernig önnur umræðan um frumvarp Þorgerðar verður á Alþingi að þessu sinni. Síðasta vor töluðu nánast eingöngu þingmenn Miðflokksins gegn frumvarpinu. Fylgi flokksins jókst í kjölfarið á meðan fylgi Sjálfstæðisflokksins dróst saman. Fylgi beggja flokka minnkaði svo vegna veiðigjaldamálsins. Frumvarpið var aftur lagt fram í september og fyrsta umræðan fór fram í síðari hluta þess mánaðar. Fylgi Miðflokksins jókst í kjölfarið meðal annars vegna þess máls.

Miðflokkurinn hefur verið á mikilli siglingu síðan miðað við skoðanakannanir. Verði flokkurinn aftur einn um að tala gegn frumvarpi Þorgerðar verður það klárlega enn frekar til þess fallið að auka fylgi hans og þá aðallega á kostnað hinna stjórnarandstöðuflokkanna. Framsóknarflokkurinn hefur lengi verið við það að detta út af þingi miðað við kannanir og fylgi Sjálfstæðisflokksins í kringum 15% í síðustu könnunum. Ljóst er að málið varðandi bókun 35 hefur haft sitt að segja þar.

Tökum á ný upp varnir

Taka þarf upp varnir í málinu á nýjan leik eins og lengst af var gert, ekki sízt í ráðherratíð Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, í utanríkisráðuneytinu, áður en Þórdís Kolbrún tók við ráðuneytinu og leyfa því að fara sína leið í samræmi við EES-samninginn. Við gerðumst aðilar að samningnum á sínum tíma á ákveðnum forsendum eins og áður er lýst í greininni og um það ríkti sameiginlegur skilningur árum saman þar til ESA ákvað að fara gegn honum.

Formaður Sjálfstæðisflokksins, Guðrún Hafsteinsdóttir, viðraði þann möguleika að málið færi fyrir EFTA-dómstólinn í ræðu sinni í fyrstu umræðunni um frumvarp Þorgerðar í haust. Benti hún réttilega á það að engin andstaða við EES-samninginn fælist í því að nýta þau úrræði sem felast í honum til þess að standa vörð um hagsmuni Íslands. Það er þvert á móti hluti af þeirri hagsmunagæzlu sem halda þarf uppi í þeim efnum. Hagsmunir Íslands hljóta alltaf að vera markmiðið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 6. janúar 2026)

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)