Merkileg frétt birtist á fréttavef Viðskiptablaðsins í gær varðandi framboðsmál Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þar var því haldið fram að samkvæmt heimildum blaðsins hefðu líkurnar á því að Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður flokksins og fyrrverandi ráðherra, tæki þátt í leiðtogakjörinu innan hans í lok þessa mánaðar hefðu minnkað í kjölfar niðurstaðna nýrrar skoðanakönnunar Gallups á fylgi flokkanna í borginni sem framkvæmd var í desember og birt 3. janúar.
Fullyrt er í fréttinni að fylgi Sjálfstæðisflokksins hefði „vaxið viðstöðulaust“ sem rímar ekki við súluritið sem birt var með henni. Fylgið jókst vissulega í desember í 35,5% samanborið við 30,8% í könnuninni á undan sem gerð var í kringum mánaðarmótin nóvember-desember. Hins vegar var það 32,1% í næstu könnun fyrirtækisins sem gerð var þar á undan um mánaðarmótin október-nóvember. Fylgið fór þvert á móti almennt séð minnkandi frá því í marz og þar til nú í desember.
Hvað gerðist í desember sem gæti hafa aukið fylgi Sjálfstæðisflokksins? Lítið var að frétta af borgarmálunum á aðventunni og yfir hátíðirnar. Helztu fréttirnar af Sjálfstæðisflokknum í borginni fjölluðu um vaxandi líkur á mögulegu framboði Guðlaugs Þórs í leiðtogakjörinu. Ekki er því fjarri lagi að ætla að hugsanlega hafi það átt þátt í auknu fylgi flokksins. Hvað annað? Hvers vegna ætti fylgið allt í einu að aukast vegna Hildar Björnsdóttur sem verið hefur oddviti undanfarin ár?
Fram kemur í fréttinni að ánægja með Hildi hafi aukizt mikið. Ekki kemur fram á hverju það er byggt. Í könnun Maskínu sem birt var 2. desember var spurt hvern aðspurðir vildu sjá sem næsta borgarstjóra. Þar nefndu 9,1% Hildi og 8,9% Guðlaug Þór sem hafði þó ekki lýst yfir framboði. Í könnun fyrirtækisins í ágúst, þar sem spurt var um ánægju með borgarfulltrúana, nefndu hins vegar 17% Hildi. Miðað við þetta má þvert á móti ætla að ánægja með Hildi hafi dregizt verulega saman.
Með öðrum orðum verður ekki séð að fréttin standist skoðun. Hún ber þvert á móti öll merki óskhyggju. Ekki veit ég hvort Guðlaugur Þór hyggst gefa kost á sér í leiðtogakjörinu. Ég hef aldrei verið í hans stuðningsmannahópi þó við höfum þekkst lengi og átt í ýmsu samstarfi til dæmis í Evrópumálunum. Mér er fyrst og fremst annt um það að Sjálfstæðisflokkurinn fái sterka útkomu í kosningunum í vor. Ég get ekki séð að sú verði raunin undir núverandi forystu flokksins í borginni.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Merki Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
