Kosið næsta haust eða síðla sumars?

Margt virðist benda til þess að til standi að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla, um það hvort sótzt verði á nýjan leik eftir inngöngu í Evrópusambandið, fari fram næsta haust eða jafnvel síðla næsta sumars. Haft var eftir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanni Viðreisnar, á mbl.is í gær að þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðið yrði lögð fram á Alþingi á yfirstandandi þingi sem lýkur í byrjun sumars samkvæmt starfsáætlun þingsins.

Heimildir Stjórnmálin.is herma að utanríkisráðuneytið geri ráð fyrir því að kosingabaráttunni fyrir þjóðaratkvæðið verði lokið í sumar. Haft var eftir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, á mbl.is í gær að ríkisstjórnin væri samstíga um að þingsályktunartillagan yrði lögð fram á vorþinginu. Hins vegar væri hvorki búið að festa dagsetningu fyrir þjóðaratkvæðið né hvenær á þinginu tillagan yrði lögð fram. Rætt yrði um það á næstu vikum.

Kristrún sagði enn fremur að þingsályktunartillagan yrði að fara í gegnum Alþingi á næstu mánuðum til þess að hægt yrði að halda þjóðaratkvæðið fyrir lok árs 2027 í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Samkvæmt kosningalögum þurfa hins vegar að lágmarki að líða þrír mánuðir frá því að slík tillaga er samþykkt þar til það getur farið fram og að hámarki ár. Ekki þarf því a leggja tillöguna fram á þessu þingi nema til standi að halda þjóðaratkvæðið á þessu ári.

Vangaveltur hafa verið uppi um það hvort þjóðaratkvæðið færi hugsanlega fram samhliða sveitarstjórnarkosningunum í vor en það er hins vegar óheimilt samkvæmt kosningalögum þar sem ekki er um að ræða sömu kjörskrá. Þannig er erlendum ríkisborgurum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum heimilt að taka þátt í sveitarstjórnarkosningum en ekki þingkosningum, forsetakosningum og þjóðaratkvæðagreiðslum. Sú verður því ekki raunin að óbreyttum lögum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)