Verði bannað að tala gegn bókun 35

Formaður og þingflokksformaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson og Ingibjörg Isaksen, hafa lagt línurnar þannig innan flokksins að þingmönnum hans verði bannað að beita sér gegn frumvarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 við EES-samninginn. Þetta herma heimildir Stjórnmálin.is. Mun þessu aðallega vera beint gegn þingmönnunum Stefáni Vagni Stefánssyni og Þórarni Inga Péturssyni.

Þau Sigurður og Ingibjörg hafa ekki farið leynt með stuðning sinn við frumvarp Þorgerðar og ítrekað tala fyrir samþykkt þess á Alþingi. Miðað við niðurstöður könnunar Prósents sem birtar voru á nýverið eru rúm 43% landsmanna andvíg frumvarpinu en 31% hlynnt því. Á meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins eru hins vegar 64% á móti frumvarpinu og aðeins 13% hlynnt. Ef miðað er einungis við þá sem tóku afstöðu með eða á móti er andstaðan 83% í röðum þeirra.

Fylgi Framsóknarflokksins mældist 6,6% í síðustu könnun Maskínu í desember og 5,2% í könnun Gallups. Fylgi flokksins hefur í sumum könnunum Gallups farið niður fyrir 5%. Síðast í ágúst síðastliðnum þegar það mældist 4,5% en 5% fylgi þarf á landsvísu til þess að ná kjörnum fulltúum inn á þing. Fylgi Miðflokksins hefur aukizt þegar þingmenn hans hafa talað gegn bókun 35 á Alþingi. Sé markmiðið að minnka fylgi Framsóknarflokksins enn frekar gengur það prýðilega.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. Eigandi: Mission of Norway to the EU – Attribution 4.0 International)