„Hvet stjornmalin.is að kynna sér heimildir sínar betur – þetta er úr lausu lofti gripið og ekki rétt,“ ritaði Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, á Facebook-síðu Stjórnmálin.is að morgni síðastliðins mánudags 12. janúar. Um var að ræða athugasemd við færslu um pistil á síðunni þar sem greint var frá því að hún og Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, hefðu lagt þær línur að þingmönnum hans yrði bannað að beita sér gegn frumvarpi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um bókun 35 við EES-samninginn.
Fyrir hönd Stjórnmálin.is ritaði ég svohljóðandi svar til Ingibjargar: „Þakkir fyrir tilskrifið, Ingibjörg. Heimildir Stjórnmálin.is eru traustar og úr innsta hring Framsóknarflokksins. Hitt er svo annað mál ef þú vilt meina að þetta sé rangt getur þú væntanlega staðfest hér og nú að þingmönnum Framsóknarflokksins verði frjálst að tjá sig að vild um bókun 35 í þinginu?“ Tveimur sólarhringum síðar bólar ekkert á svari. Hliðastæða athugasemd ritaði hún við færslu í lokuðum spjallhóp framsóknarmanna á Facebook á mánudaginn þar sem pistlinum var deilt og spurt hvort þetta væri virkilega satt.
Heilmiklar umræður hafa skapast um færsluna í Facebook-hópnum og hefur Ingibjörg bæði verið beðin að útskýra hvað væri rétt í málinu, fyrst hún vildi meina að skrifin á Stjórnmálin.is væru röng, og enn fremur upplýsa um afstöðu hennar til bókunar 35. Engin svör hafa fengizt við því heldur. Heimildir Stjórnmálin.is eru traustar sem fyrr segir. En væri það á rökum reist að Ingibjörg hefði rétt fyrir sér væri varla neitt því til fyrirstöðu að staðfesta það að ekki yrði reynt að setja þingmönnum flokksins stólinn fyrir dyrnar varðandi umræður um frumvarpið. Það hefur hún sem sagt ekki gert.
Hvað varðar afstöðu Ingibjargar til málsins liggur hún fyrir eins og fjallað hefur verið um á Stjórnmálin.is. Hún er ljóslega hlynnt samþykkt þess og hefur hafnað því að það fari í bága við stjórnarskrána og feli í sér framsal valds. Vert er að rifja upp að miðað við niðurstöður könnunar Prósents sem birtar voru á nýverið eru rúm 43% landsmanna andvíg frumvarpinu en 31% hlynnt því. Á meðal stuðningsmanna Framsóknarflokksins eru hins vegar 64% á móti frumvarpinu og aðeins 13% hlynnt. Ef miðað er einungis við þá sem tóku afstöðu með eða á móti því er andstaðan 83% í röðum þeirra.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)
