Mest andstaða við „áframhaldandi aðildarviðræður“ við Evrópusambandið, eins og orðalagið var í skoðanakönnun Maskínu fyrir Sýn sem birt var nýverið, þegar horft er til aldurs er í yngsta aldurshópnum, 18-29 ára.
Þannig eru 54,5% andvíg því en 45,5% hlynnt þegar aðeins er horft til þeirra sem tóku afstöðu með eða á móti en þannig voru niðurstöðurnar kynntar. Fleiri eru hlynntir en andvígir í öðrum aldurshópum. Niðurstöður könnunarinnar almennt eru þær að 53% eru hlynnt „áframhaldandi aðildarviðræðum“ en 47% hins vegar andsnúin þeim.
Hliðstæða sögu er að segja af nýjustu könnunum sem birtar hafa verið í Noregi. Þar hefur hvað mest andstaða mælst í röðum ungs fólks við inngöngu í Evrópusambandið þegar aldurshópar hafa verið annars vegar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ríkisfáni Íslands á Þingvöllum. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)
