Milljónir fyrir skoðanakannanir

Miðað við opna reikninga ríkisins greiddi utanríkisráðuneytið tæpar 4,7 milljónir króna á síðasta ári til rannsóknafyrirtækisins Maskínu sem sérhæfir sig í gerð skoðanakannana. Tæpum tveimur milljónum króna meira en árið á undan en ráðuneytið hefur frá árinu 2019 átt í viðskiptum við fyrirtækið ásamt fleiri ráðuneytum sem og opinberum stofnunum.

Maskína hefur á undanförnum árum framkvæmt árlega stóra könnun fyrir utanríkisráðuneytið um utanríkismál almennt. Hins vegar hefur ráðuneytið aldrei greitt meira til fyrirtækisins en á síðasta ári eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum. Mest var áður greitt til Maskínu 2023 eða rúmar 3,8 milljónir króna. En á síðasta ári tæpri milljón meira sem fyrr segir.

Hvað var verið að greiða fyrir með stórauknum greiðslum? Frá því síðasta sumar hefur Maskína mánaðarlega gert kannanir um afstöðu fólks til inngöngu í Evrópusambandið. Niðurstöðurnar hafa hins vegar ekki verið birtar. Ein spurning kostar hundrað þúsund krónur. Kaupandinn er einhver sem getur leyft sér að kaupa margar slíkar án þess að birta þær.

Tvær síðustu kannanir Maskínu um afstöðuna til inngöngu í Evrópusambandið sem voru birtar voru gerðar á fyrri hluta síðasta árs. Önnur sem hluti af áðurnefndri árlegri könnun fyrir utanríkisráðuneytið. Í þeim voru fleiri andvígir því að ganga í sambandið en hlynntir. Ekki er ólíklegt að óbirtu kannanirnar hafi einnig verið gerðar fyrir ráðuneytið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)