Vaxandi andstaða við „aðildarviðræður“

Fyrir viku voru birtar niðurstöður skoðanakönnunar sem Maskína gerði fyrir Sýn um afstöðu fólks til „áframhaldandi aðildarviðræðna“ við Evrópusambandið. Samkvæmt könnuninni voru 53% hlynnt en 47% andvíg ef aðeins var miðað við þá sem tóku afstöðu með eða á móti. Niðurstöðurnar voru bornar saman við könnun fyrirtækisins fyrir um ári síðan þar sem munurinn á fylkingunum var aðeins minni. Munurinn á könnununum er hins vegar innan vikmarka.

„Ég fagna þeim meðbyr sem nú er að myndast í umræðunni,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, í færslu á Facebook-síðu sinni 11. janúar í tilefni skoðanakönnunarinnar. Daginn eftir var hins vegar haft eftir Þóru Ásgeirsdóttur, framkvæmdastjóra Maskínu, í Morgunblaðinu að áhuginn á niðurstöðum hennar hefði komið starfsmönnum fyrirtækisins á óvart þar sem þær hefðu verið svipaðar og í könnuninni ári fyrr.

Hitt er svo annað mál að Maskína gerði aðra skoðanakönnun á milli þessara tveggja, um mánaðarmótin marz-apríl á liðnu ári, þar sem spurt var einnig um afstöðu fólks til aðildarviðræðna. Þá sögðust 57% hlynnt þeim en 43% andvíg ef aðeins er að sama skapi horft til þeirra sem tóku afstöðu með eða á móti. Fjórum prósentustigum meiri stuðningur og minni andstaða en nú. Merkilegt nokk var sú könnun gerð fyrir utanríkisráðuneytið. Ráðuneyti Þorgerðar. Meðbyrinn…

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)