Sirkusinn kostar 20 milljarða króna á ári

Tvö risastór þinghús með öllu tilheyrandi eru rekin af hálfu Evrópusambandsins fyrir þing þess. Annað í Strasbourg í Frakklandi og hitt í Brussel í Belgíu. Þá er þriðja byggingin í Lúxemborg fyrir skrifstofur þingsins. Hinir vel yfir 700 þingmenn þess ferðast í hverjum mánuði á milli þinghúsanna með allt sitt hafurtask og starfsfólk. Þess á milli standa húsin auð. Miðað við mat endurskoðendaskrifstofu sambandsins árið 2014 kostaði fyrirkomulagið þá árlega 114 milljónir evra umfram það sem rekstur þingsins annars kostaði. Núvirt eru það um 143 milljónir evra á ári eða sem nemur yfir 20 milljörðum króna.

Forsaga málsins er sú að þegar þing Evrópusambandsins, eða forvera þess, var fyrst komið á laggirnar fékk það inni í húsnæði Evrópuráðsins sem tengist ekki sambandinu og hafði verið stofnað nokkrum árum fyrr. Hins vegar byggðust ríkisstjórn (framkvæmdastjórnin) og ráðherraráð þess upp í Brussel. Þar sem hlutverk þingsins var ekki sízt að hafa eftirlit með störfum þessara stofnana fór starfsemi þess sífellt meira fram þar í borg. Um 1990 var núverandi fyrirkomulag meira eða minna búið að festa sig í sessi þar sem fundir þingnefnda og þingflokksfundir fara fram í Brussel en þingfundir í Strasbourg.

Fyrirkomulagið hefur verið kallað farandsirkusinn (e. the travelling circus) vegna alls umstangsins sem það felur í sér að flytja allt það sem fylgir starfsemi þings Evrópusambandsins á milli Brussel og Strasbourg mánaðarlega sem meðal annars hefur falið í sér langa lest flutningabíla. Ferðalagið tekur um fjóra tíma aðra leiðina en vegalengdin er 440 kílómetrar. Til samanburðar eru um 390 kílómetrar á milli Reykjavíkur og Akureyrar. Þinghúsið í Brussel er um 87 þúsund fermetrar að stærð og húsakynnin í Strasbourg 220 þúsund fermetrar. Til dæmis hafa allir þingsmenn þingsins skrifstofur í báðum byggingunum.

Fyrirkomulagið hefur reglulega verið gagnrýnt fyrir sóun á fjármunum skattgreiðenda ríkja Evrópusambandsins sem og út frá sjónarhóli umhverfisverndar. Ekki einungis flutningarnir sem slíkir í hverjum mánuði fram og til baka heldur einnig það að halda úti tveimur risastórum þinghúsum með tilheyrandi hitunarkostnaði, viðhaldi og öðru sem stæðu ónotuð stóran hluta ársins. Hins vegar er fyrirkomulagið bundið í sáttmála sambandsins og til þess að breyta því þarf samþykki allra ríkjanna. Þar á meðal Frakklands sem vill bæði af pólitískum og fjárhagslegum ástæðum ekki að starfsemin færist frá Strasbourg.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þingsalirnir í þinghúsunum í Strasbourg og Brussel. Eigandi: European Parliament – Attribution 4.0 International)