Tekið var eftir því þegar Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, tilkynnti um formannsframboð sitt í gær, eins og fjallað var um á Stjórnmálin.is fyrir helgi að til stæði, að ekki var minnzt einu orði á utanríkismálin í framboðstilkynningu hennar. Hvorki á Evrópumálin né heimsmálin almennt sem eru þó mál málanna þessi misserin.
Fyrir það fyrsta eru utanríkismálin ekki málaflokkur sem Ingibjörg hefur beitt sér í að neinu sérstöku marki. Hvað Evrópumálin varðar hefur hún í umræðum á Alþingi tekið undir málflutning þeirra sem hafa viljað samþykkja frumvarp ríkisstjórnarinnar um bókun 35 og þannig meðal annars hafnað því að það færi í bága við fullveldið og stjórnarskrána.
Fyrr í mánuðinum beitti Ingibjörg sér fyrir því ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni, fráfarandi formanni Framsóknarflokksins, að lagðar væru þær línur innan þingflokksins að þingmönnum hans yrði bannað að beita sér gegn frumvarpinu um bókun 35 í umræðum á Alþingi eins og Stjórnmálin.is hafa greint frá og hafa áreiðanlegar heimildir fyrir.
Málið var til umræðu á lokaðri spjallsíðu framsóknarmanna á Facebook þar sem Ingibjörg fullyrti að ekkert væri hæft í umfjöllun Stjórnmálin.is en varð hins vegar hvorki við ítrekuðum óskum flokksmanna sinna á síðunni um að upplýsa þá hvað væri rétt í málinu fyrst hún segði umfjöllunina ranga né hver afstaða hennar væri til bókunar 35.
Hið sama á við um athugasemd sem Ingibjörg ritaði á Facebook-síðu Stjórnmálin.is þar sem hún hélt því að sama skapi fram að umfjöllunin væri ekki á rökum reist. Hún fékk það svar frá síðunni að hún gæti þá væntanlega staðfest að þingmönnum Framsóknarflokksins yrði „frjálst að tjá sig að vild um bókun 35.“ Ekkert svar hefur borizt.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)
