Viðreisn að „klúðra“ Evrópumálunum

Fyrrverandi utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson, sem réði ríkjum í utanríkisráðuneytinu á árunum 2009-2013 þegar þáverandi ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sótti um inngöngu í Evrópusambandið, segir Viðreisn vera að klúðra Evrópumálunum. Með öðrum orðum talar Össur þar af reynslu.

„Eitt er að klúðra niður fylginu en mér sýnist að þið séuð á sömu leið með Evrópumálin,“ sagði Össur þannig í athugasemd við færslu Sigmars Guðmundssonar, þingmanns Viðreisnar, á Facebook í dag. Þar talaði Sigmar um aldna höfðingja sem horfðu vestur um haf með aðdáun og vísaði þar til forsetans fyrrverandi Ólafs Ragnars Grímssonar.

Hins vegar væru þeir „sem betur fer allir fyrrverandi hitt og þetta.“ Væntanlega á talsvert annað við um aldna höfðingja sem horfa austur um haf með aðdáun að mati Sigmars, það er að segja til Evrópusambandsins, eins og Þorstein Pálsson, guðföður Viðreisnar, sem er aðeins fjórum árum yngri en Ólafur og er einnig fyrrverandi hitt og þetta.

Tal Sigmars um aldna höfðingja fór illa í Össur enda ljóst að það var ekki hugsað sem hrós. Sagði hann að þeir Sigmar gætu verið ósammála Ólafi um Evrópusambandið en skoðanir Ólafs á því og „öðrum stórveldum“ væru hins vegar fullrar virðingar verðar. „Þú eða þið í Viðreisn vinnið enga slagi, allra sízt um Evrópu, með því að tala niður til fólks.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Össur Skarphéðinsson. Eigandi: Norden.org/Johannes Jansson)