Fleiri Norðmenn vilja ekki ganga í Evrópusambandið en eru því hlynntir miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar fyrirtækisins Opinion sem fjallað var um í norska dagblaðinu Dagsavisen 20. janúar. Þannig eru 50% andvíg inngöngu en 35% henni hlynnt. Sem fyrr er mest andstaða á meðal fólks yngra en þrítugt eða 59% á móti en 26% hlynnt.
Fleiri hafa verið andvígir inngöngu í Evrópusambandið í Noregi samkvæmt öllum skoðanakönnunum sem birtar hafa verið þar í landi frá því snemma árs 2005 eða í meira en tvo áratugi. Forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, hefur sagt að ekki standi til að setja málið á dagskrá en landsfundur Verkamannaflokksins, flokks hans, hafnaði því fyrir tæpu ári.
Með öðrum orðum er ljóst að engan bilbug er að finna á andstöðunni í Noregi við það að gengið verði í Evrópusambandið þrátt fyrir að ýmislegt hafi gengið á í heiminum. Hvorki innrás Rússlands í Úkraínu né vera Donalds Trump á forsetastóli í Bandaríkjunum hefur breytt neinu í þeim efnum. Ef eitthvað hefur andstaðan við inngöngu frekar aukizt.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)
