Komið er nú endanlega í ljós að digurbarkalegt tal Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, í kjölfar þess að Evrópusambandið setti refsitolla á innflutt kísiljárn frá Íslandi síðasta haust þvert á EES-samninginn var alls innihaldslaust og aðeins hugsað til heimabrúks eins og áður hefur verið fjallað um á Stjórnmálin.is.
Þorgerður hefur nú lýst því yfir að refsitollar Evrópusambandsins séu „ásættanleg niðurstaða“ en hafði áður tekið undir það að þeir færu gegn EES-samningnum og að við hefðum ekkert gert til þess að verðskulda þá. Áður en tollarnir voru lagðir á en voru yfirvofandi höfðu bæði hún og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra afsakað sambandið í bak og fyrir.
Fyrir jól lýsti Þorgerður því einnig yfir að vegna refsitollanna yrði ekki skrifað undir varnarsamkomulag við Evrópusambandið. Síðan var talað um að undirrituninni yrði frestað og fyrr í þessum mánuði lýsti hún því yfir að til stæði að skrifa undir. Þrátt fyrir að tollar sambandsins væru óbreyttir. Yfirlýsingarnar í upphafi voru einfaldlega alls innistæðulausar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
