Miðað við tölur frá Eurostat, hagstofu Evrópusambandsins, var langtímaatvinnuleysi minnst á Íslandi á árinu 2023 þegar horft er til hlutfalls langtímaatvinnulausra af heildarvinnuafli viðkomandi lands. Skilgreiningin á langtímaatvinnuleysi er sú að viðkomandi hafi verið atvinnulaus í meira en tólf mánuði samfellt.
Hlutfall langtímaatvinnulausra af heildarvinnuaflinu var þannig 0,3% hér á landi en til samanburðar var meðaltalið innan Evrópusambandsins 2,1%. Hlutfallið var hátt í tvöfalt hærra í Danmörku, Noregi og Hollandi en hér á landi, ríflega þrefalt hærra í Þýzkalandi og á Írlandi og fjórum sinnum hærra í Sviss.
Hlutfallið var tæplega fimm sinnum hærra í Svíþjóð og Finnlandi, um sex sinnum hærra í Frakklandi og Lúxemborg, fjórtán sinnum hærra á Spáni og Ítalíu og 20 sinnum hærra í Grikklandi.


Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Byggingakranar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
