„Örlög Framsóknarflokksins eru í húfi“

„Við erum í raun að tala um framtíð Framsóknarflokksins sem aldrei fyrr. Örlög flokksins okkar eru einfaldlega í húfi,“ sagði góður og gegn framsóknarmaður til margra ára við mig nýverið. Umræðuefnið var flokksþing Framsóknarflokksins sem fram fer um næstu helgi þar sem kjörinn verður meðal annars nýr formaður. Tilkynnt hefur verið um tvö formannsframboð. Frá Ingibjörgu Isaksen, þingflokksformanni flokksins, og Lilju Alfreðsdóttur, varaformanni hans.

Fráfarandi formaður Framsóknarflokksins, Sigurður Ingi Jóhannsson, styður Ingibjörgu sem arftaka sinn. Hún var þó ekki hans fyrsta val. Áður var lengi reynt að fá Willum Þór Þórsson, fyrrverandi ráðherra og þingmann flokksins, til þess að taka slaginn. Þegar ljóst var að Willum væri ekki til í það var „rykið dustað af Ingibjörgu“, eins og framsóknarmaðurinn orðaði það, sem áður hafði verið gengið framhjá. Þrátt fyrir að hún væri þingflokksformaður og ætti sæti á Alþingi.

„Við framsóknarmenn höfum skýrt val. Hvort við viljum meira af því sama sem hefur verið í gangi undanfarin ár og hefur skilað flokkum okkar þangað sem hann er núna. Að berjast við það að halda okkur fyrir ofan fimm prósentustiga fylgi og hljóta ekki sömu örlög og Vinstri grænir. Eða hvort við viljum hefja nýja sókn með skýra stefnu á grundvelli hugsjóna flokksins,“ sagði framsóknarmaðurinn gamalreyndi áfram og vísaði þar fyrst til Ingibjargar og síðan til Lilju.

„Miðflokkurinn mun hagnast á því ef Ingibjörg verður formaður. Ég hef heyrt í mörgum í Framsókn sem segjast fara þangað ef hún sigrar. Þeir geti bara ekki meira af því sama. Ég hef líka heyrt í Miðflokksmönnum sem átta sig greinilega á því að það væri gott fyrir þá ef Ingibjörg tekur við flokknum. Þeir segja það ekki beint út en það leynir sér samt ekki að þeir eru að vona það. Ingibjörg er ekkert að fara að endurheimta neitt fylgi þaðan. Þvert á móti. En Lilja gæti það.“

Spurður um þá umræðu að Lilja sé ekki á þingi sagði hann: „Bíddu, ætluðu þeir ekki fyrst að fá Willum í þetta? Hann situr ekki á þingi heldur. Hversu trúverðugt er þá að nota það gegn Lilju? Auðvitað geta fylgt því kostir að vera á þingi en það er ekki það eina sem máli skiptir. Það er svo margt annað. Reynsla, menntun og bara manneskjan sjálf. Þetta var hægt í ýmsum tilfellum hér áður. Þegar menn höfðu bara snúrusímann. Hvers vegna ekki í dag með okkar nútímatækni?“

Hins vegar yrði Lilja ekki útilokuð frá Alþingishúsinu. Hún sæti þingflokksfundi og yrði í góðu sambandi við sitt fólk, bæði í þingflokknum og utan hans. „Svo hefur hún verið miklu meira áberandi í umræðunni en Ingibjörg þrátt fyrir að vera ekki á þingi. Með reglulegum blaðaskrifum, á opnum fundum og í fjölmiðlaviðtölum. Hún hefur jafnvel verið meira áberandi en Sigurður Ingi. Flestir sem detta út af þingi hætta slíku. En ekki hún. Þetta er ástríða fyrir hugsjónunum.“

Talið berst síðan að Evrópusambandinu og bókun 35 við EES-samninginn: „Þú hefur nú skrifað um það að Ingibjörg minntist ekki einu orði á utanríkismálin í framboðsauglýsingunni sinni. Það segir nú ansi mikið. Ekkert um ESB eða bókunina. Enda er hún hlynnt bókuninni eins og þú hefur líka skrifað um. Það leynir sér ekki. Hefur tekið undir allan málflutning Þorgerðar [Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar]. Svo þykist hún allt í einu hafa séð ljósið núna. Tilviljun?“

„Ég er alveg sammála því sem komið hefur fram á síðunni þinni. Ég sé ekki frekar en margir aðrir hvað Ingibjörg hafi í raun fram yfir Lilju í þetta annað en þingsætið. Og þingsætið er ekki einhver mannkostur. Það er hægt að missa það eins og dæmin sýna. Og eins geta þeir sem ekki eru á þingi í augnablikinu auðvitað náð kjöri síðar. Það eitt og sér getur ekki ráðið úrslitum um það hvort einhver telst hæfur til þess að leiða flokkinn okkar. Flest annað vegur í rauninni þyngra.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Merki Framsóknarflokksins. Eigandi: Facebook-síða Lilju Alfreðsdóttur)