Miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Gallups eru 42% landsmanna andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið og sama hlutfall þeirra hlynnt henni. Í könnun fyrirtækisins í maí síðastliðnum, sem er síðasta könnun þess þar á undan sem birt hefur verið, voru 43% hlynnt inngöngu en 38,6% andvíg. Í könnun þess í marz voru 44% hlynnt en 36% andvíg. Með öðrum orðum hefur jafnt og þétt fjarað undan stuðningi við inngöngu í sambandið samkvæmt könnunum Gallups.
Kannanir Maskínu sem birtar hafa verið hafa á sama tíma sýnt fleiri andvíga inngöngu en hlynnta. Niðurstöður slíkrar könnunar hafa þó ekki verið birtar síðan síðasta vor. Ekki vegna þess að slíkar kannanir hafi ekki verið gerðar heldur vegna þess að niðurstöður hafa einfaldlega ekki verið birtar. Þannig liggur fyrir að slíkar kannanir hafa verið gerðar mánaðarlega síðan síðasta sumar, að öllum líkindum fyrir einhvern hlynntan inngöngu í Evrópusambandið, en ekki verið birtar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ríkisfáni Íslands á Þingvöllum. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)
