Segist nú vera andvíg bókun 35

Vitanlega er alltaf gott þegar fólk sér ljósið. Hins vegar er verra þegar það getur engan veginn talizt trúverðugt. Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og frambjóðandi til formennsku í flokknum, segist nú á fundum með flokksmönnum vera andvíg frumvarpi ríkisstjórnarinnar um bókun 35 við EES-samninginn. Ástæðuna segir hún breyttar aðstæður með vísan í ákvörðun Evrópusambandsins um að leggja tolla á innflutt kísiljárn frá Íslandi.

Hins vegar lá ákvörðun Evrópusambandsins fyrir um miðjan nóvember. Í janúar lögðu Ingibjörg og Sigurður Ingi Jóhannsson, fráfarandi formaður Framsóknarflokksins, á hinn bóginn þær línur innan þingflokks flokksins að komið yrði í veg fyrir að þingmenn hans gætu beitt sér gegn frumvarpinu um bókun 35 í umræðum á Alþingi. Mögulega hefur einfaldlega tekið Ingibjörgu tvo og hálfan mánuð að sjá ljósið og í millitíðinni reynt að þagga niður í þingmönnunum.

Fjallað var um áðurnefnda framgöngu Ingibjargar og Sigurðar Inga á Stjórnmálin.is í síðasta mánuði. Ingibjörg hélt því þá fram að ekki væri rétt farið með. Meðal annars á lokaðri síðu framsóknarmanna á Facebook. Hins vegar fékkst hún hvorki til þess að upplýsa hvað væri þá rétt í þeim efnum ef umfjöllun Stjórnmálin.is væri röng þrátt fyrir ítrekaðar óskir um það, né að upplýsa hver afstaða hennar væri til frumvarpsins um bókun 35. Eins þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir.

Hitt er svo annað mál að Ingibjörg hafði þá þegar upplýst um afstöðu sína til bókunar 35. Þannig tók hún undir málflutning stuðningsmanna frumvarpsins í umræðum á Alþingi á síðasta ári og hafnaði því meðal annars ítrekað að það færi í bága við stjórnarskrána og fullveldið. „Það er mikilvægt að við ræðum bókun 35 á málefnalegan og yfirvegaðan hátt og af skynsemi. Við eigum ekki að láta umræðuna snúast um óþarfa ótta eða röng skilaboð um framsal fullveldis.“

Meint sinnaskipti Ingibjargar munu annars ekki sízt vera afleiðing umfjallana á Stjórnmálin.is um málið og ítrekaðra spurninga um það á fundum hennar með framsóknarmönnum í kjölfarið en einnig skoðanakönnunar fyrr á árinu sem sýndi að mikill meirihluti stuðningsmanna Framsóknarflokksins væri andvígur frumvarpinu. Þá hefur Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður flokksins sem einnig gefur kost á sér í formannskjörinu, lengi talað alfarið gegn frumvarpinu.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Eigandi: Skjáskot af Ruv.is)