Miðað við umfjöllun Jakobs Bjarnars Grétarssonar á Vísi í gær um fyrirhugað formannskjör á flokksþingi Framsóknarflokksins mætti helzt ætla að aldrei hafi áður átt sér stað svokölluð smölun í aðdragada slíkra samkoma hér á landi. Veruleikinn er hins vegar vitanlega sá að það væri fyrst frétt ef sú væri ekki raunin. Kallaði Jakob þetta bolabrögð og vill meina að slíku sé einungis beitt af hálfu stuðningsmanna Lilju Alfreðsdóttur þegar raunin er sú að það er á báða bóga. Eins og einatt.
Fram kemur í umfjölluninni að Vísir hafi rætt við nokkra framsóknarmenn sem vildu ekki koma fram undir nafni en fullyrtu að „óheiðarleiki og ógnarstjórnartilburðir séu nú viðhafðir að tjaldabaki“ af stuðningsmönnum Lilju. Hins vegar kemur ekki fram í hverju sú meinta framganga hafi falizt. „Það er ef til vill til marks um eins konar ógn að fólk sem Vísir hefur heyrt í vill alls ekki tjá sig undir nafni,“ segir síðan. Ef til vill? Umræddir einstaklingar hafa sem sagt ekki sagt það sjálfir.
Framsóknarmenn sem haft hafa samband við mig vegna skrifa minna um málið á Stjórnmálin.is hafa hins vegar ekki heldur viljað koma fram undir nafni. Ástæðan sé sú að Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður sé frambjóðandi flokkseigendafélagsins sem vilji ekki Lilju sem formann vegna þess að hún hlýði þeim ekki. Þess vegna hafi þurft að finna einhvern á móti henni. Finnur Ingólfsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra Framsóknarflokksins, hafi fengið það verkefni.
Flokkseigendafélagið er ekki sízt fyrrum nánir stuðningsmenn Halldórs heitins Ásgrímssonar, formanns Framsóknarflokksins, eins og Finnur. Þeir komu Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni úr formannsstólnum á sínum tíma þegar tækifæri gafst vegna þess að hann hlýddi þeim ekki heldur og settu Sigurð Inga Jóhannsson, fráfarandi formann, sem hlýddi, í hans stað. Nú á að reyna að gera Ingibjörgu að formanni flokksins einkum vegna þess að hún hlýðir flokkseigendafélaginu.
Hins vegar var Ingibjörg ekki fyrsta val flokkseigendafélagsins heldur var fyrst reynt að fá Willum Þór Þórsson, fyrrverandi ráðherra og þingmann, í framboð þrátt fyrir að hann væri hættur í stjórnmálum og tiltölulega nýtekinn við sem forseti Íþrótta- og ólympíusambands Íslands. Hann vildi hins vegar ekki vera notaður á þann hátt og lýsti í staðinn yfir stuðningi við Lilju. Með öðrum orðum töldu þeir réttilega og að Ingibjörg væri ekki nógu sterkur frambjóðandi gegn Lilju.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, og Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður flokksins og fyrrverandi þingmaður og ráðherra. Eigandi: Samsett mynd úr framboðsmyndum Ingibjargar og Lilju)
