Framboð Ingibjargar Isaksen, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, til formanns flokksins hefur meðal annars lagt áherzlu á árangur hans í Norðausturkjördæmi, kjördæmi hennar, í síðustu þingkosningum í samanburði við Reykjavíkurkjördæmi suður, kjördæmi varaformannsins Lilju Alfreðsdóttur sem einnig er í framboði. Fróðlegt er að skoða þetta nánar.
Framsóknarflokkurinn hlaut 14,2% fylgi í Norðausturkjördæmi en 4,4% í Reykjavíkurkjördæmi suður í þingkosningunum 2024. Frá kosningunum á undan tapaði flokkurinn hins vegar 10,4% fylgi í Norðausturkjördæmi en 7,1% í Reykjavíkurkjördæmi suður. Í báðum tilfellum tapaðist einn þingmaður. Raunar tapaðist minnst fylgi í kjördæmi Lilju í kosningunum.
Hins vegar hefði getað farið svo að Framsóknarflokkurinn hefði tapað tveimur mönnum í Norðausturkjördæmi í ljósi þess að annar þingmaður flokksins er uppbótarþingmaður. Í kosningunum 2021 náði Framsóknarflokkurinn þremur kjördæmakjörnum þingmönnum í mikilli fylgisaukningu hans á landsvísu og í kosningunum 2017 tveimur kjördæmakjörnum.
Málið er þannig langt frá því að vera eins einfalt og framboð Ingibjargar hefur kosið að matreiða það. Framsóknarflokkurinn hefði hæglega getað endað uppi með aðeins einn þingmann í Norðausturkjördæmi. Uppbótarþingmenn ná jú ekki sízt kjöri vegna fylgisins á landsvísu. Þá tapaði flokkurinn minnstu eiginlegu fylgi í Reykjavík suður sem fyrr segir.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Merki Framsóknarflokksins. Eigandi: Facebook-síða Lilju Alfreðsdóttur)
