„Framsókn styður ekki bókun 35,“ segir í stjórnmálaályktun flokksþings Framsóknarflokksins sem fram fór um helgina. Um er að ræða stefnubreytingu en Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrverandi formaður flokksins, var hlynntur bókuninni. Nýr formaður Framsóknarflokksins, Lilja Alfreðsdóttir, hefur hins vegar beitt sér gegn henni í ræðu og riti. Fyrir vikið hefur ekki aðeins stefna flokksins breytzt heldur formaður, sem fylgja mun henni eftir af krafti, verið kjörinn.
Stjórnmálaályktun flokksþingsins um Evrópumálin í heild er svohljóðandi: „Framsókn hafnar þeirri forgangsröðun að aðildarviðræður við Evrópusambandið séu settar ofar brýnum aðgerðum til stuðnings heimilum og fjölskyldum í landinu. Hagur lands og þjóðar er best borgið utan Evrópusambandsins. Ef þjóðinni er falið að kjósa um evrópumál ætti að kjósa um hvort þjóðin vilji ganga í Evrópusambandið eða ekki. Framsókn styður ekki bókun 35.“
Miðað við skoðanakönnun Prósents fyrir Heimssýn sem birt var fyrr á þessu ári er mikill meirihluti stuðningsmanna Framsóknarflokksins andvígur bókun 35 af þeim sem tóku afstöðu. Hið sama á við um meirihluta þjóðarinnar. Innt eftir því fyrr á árinu hvort afstaða þjóðarinnar hefði áhrif á málið að mati ríkisstjórnarinnar neitaði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra því á þeim forsendum að málið væri of stórt. Hún treystir jú þjóðinni…
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ríkisfáni Íslands á Þingvöllum. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)
