Segja Ísland á hraðleið inn í ESB

Hérlendir Evrópusambandssinnar halda því reglulega fram að Noregur sé á leið í Evrópusambandið og fyrir vikið þurfi Ísland að drífa sig þangað inn til þess að vera á undan Norðmönnm. Á sama tíma halda norskir Evrópusambandssinnar því þvert á móti iðulega fram að Ísland sé á hraðleið í sambandið og fyrir vikið þurfi Norðmenn að flýta sér þangað inn.

Hugmyndin er að reyna að skapa einhvers konar keppni um það að ganga fyrr í Evrópusambandið. Framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, Snærós Sindradóttir, bar beinlínis þann boðskap með sér síðasta haust eftir að hafa heimsótt systursamtökin í Noregi. Að þau skoruðu á Ísland í keppni um það hvort landið verði á undan í sambandið.

Veruleikinn er hins vegar sá að fátt ef eitthvað bendir til þess að Noregur sé á leiðinni í Evrópusambandið. Fleiri Norðmenn hafa verið andvígir inngöngu í sambandið en hlynntir í öllum skoðanakönnunum sem birtar hafa verið undanfarin rúm 20 ár. Enginn meirihluti er fyrir málinu á norska Stórþinginu og ríkisstjórnin hefur málið ekki á stefnuskrá sinni.

Kosið var síðast til Stórþingsins síðastliðið haust og verður ekki kosið aftur fyrr en haustið 2029 þar sem ekki er hægt að rjúfa þing í Noregi. Flokkar sem vilja í Evrópusambandið hafa samanlagt 34 þingsæti af 169. Verkamannaflokkurinn myndar núverandi minnihlutastjórn í Noregi. Flokkurinn var hlynntur inngöngu í sambandið en er það ekki lengur.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Norski fáninn. Eigandi: Bjørn Erik Pedersen – Attribution 4.0 International)