Kristrún: Nei þýðir nei – tímabundið

Forystumenn ríkisstjórnarinnar hafa ítrekað sagt að verði því hafnað að hefja á ný umsóknarferli að Evrópusambandinu í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði verði sú niðurstaða virt. Hins vegar eru skilaboðin erlendis ekki endilega þau sömu eins og til dæmis sást í norska dagblaðinu Nationen í fyrradag þar sem haft var eftir Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formanni Samfylkingarinnar, að ef niðurstaðan yrði nei í þjóðaratkvæðinu þýddi það nei – um stund.

„Ef það er nei, þá er það nei um stund,“ hefur Nationen þannig eftir Kristrúnu eða á norsku: „Om det er et nei så er det et nei for en stund.“ Sem sagt tímabundið. Hvers vegna hún sagði ekki einfaldlega að nei þýddi nei án slíks fyrirvara vekur furðu. Þekkt er annars að þegar þjóðaratkvæði hafa átt sér stað innan Evrópusambandsins hefur iðulega verið spurt aftur um sömu málin þar til kjósendur hafa láta undan og kosið eins og sambandið hefur viljað. Þá er aldrei kosið aftur.

Tilefni fréttarinnar var fundur Kristrúnar með Jonasi Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs. Støre fer fyrir minnihlutastjórn Verkamannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar, en flokkurinn hefur ekki inngöngu í Evrópusambandið á stefnuskrá sinni ólíkt því sem áður var. Meirihluti norska þingsins er andvígur því að gengið verði í sambandið og fleiri Norðmenn hafa verið andvígir því en hlynntir samkvæmt öllum skoðanakönnunum undanfarin rúm 20 ár.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)