Vilja ekki ganga aftur í ESB

Kæmi til þess að Bretland gengi aftur í Evrópusambandið yrði landið bæði skuldbundið til þess að taka upp evruna sem gjaldmiðil sinn og gerast aðili að Schengen-svæðinu eins og önnur ríki sem ganga í sambandið. Þegar Bretar voru í Evrópusambandinu voru þeir aðilar að hvorugu. Miðað við skoðanakönnun fyrirtækisins YouGov síðasta sumar eru fleiri andvígir því en hlynntir að ganga aftur í sambandið ef taka þyrfti upp evruna og verða hluti af Schengen eða 45% á móti 36%. Með öðrum orðum er ljóslega í reynd ekki vilji til þess að ganga aftur í Evrópusambandið.

Talsmenn inngöngu Íslands í Evrópusambandið vísa gjarnan í skoðanakannanir í Bretlandi þess efnis að fleiri vilja ganga aftur í sambandið en vera áfram utan þess. Hins vegar er fólk þar ljóslega að gera ráð fyrir því að Bretar geti gengið þar inn á sömu forsendum og áður. Sömu reglur gilda hins vegar um öll umsóknarríki. Skuldbinding meðal annars um að taka upp evruna og verða hluti af Schengen sem fyrr segir. Þá má rifja upp að þegar þjóðaratkvæðið var ákveðið í Bretlandi um útgöngu landsins úr sambandinu var meirihluti andvígur henni. Síðan hófst kosningabaráttan og það snerist við.

Fróðlegt er einnig að skoða skoðanakönnun fyrirtækisins Opinium í desember. Þar gat fólk valið á milli fjögurra valmöguleika; ganga aftur í Evrópusambandið, vera áfram utan þess en semja um nánari tengsl við það, vera áfram utan sambandsins á sömu forsendum og í dag og vera áfram utan þess og semja um minni tengsl við það. Einungis 31% vildi ganga aftur í Evrópusambandið, 25% vildi nánari tengsl við sambandið, 19% sömu tengsl og 14% minni tengsl. Þannig vildu 58% vera áfram utan Evrópusambandsins með einum eða öðrum hætti og 31% ganga aftur í sambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Tower Bridge í London, höfuðborg Bretlands. Eigandi: Luxbao)