Fram kom í drögum utanríkisráðuneytisins að samningi við Evrópuhreyfinguna og Heimssýn, um fjárstyrki að upphæð 10 milljónum króna til hvorra samtaka vegna fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis, að ráðstafa þyrfti fénu eigi síðar en 30. júní 2026. Því mun síðan hafa verið breytt að ósk Heimssýnar í endanlegum samningi og þess í stað miðað við árslok.
Hvers vegna ráðuneytið taldi þörf á því að taka fram að fénu skyldi ráðstafað fyrir mitt næsta sumar er vitaskuld áhugavert nema inni í myndinni kosið verði fljótlega eftir það. Athyglisvert er að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur ekkert viljað segja afgerandi um það hvort kosið verði í sumar eins og fréttavefurinn Politico sagðist hafa heimildir fyrir.
Þorgerður greindi frá því í gær að þingsályktunartillaga vegna þjóðaratkvæðisins yrði lögð fram á ríkisstjórnarfundi á föstudaginn. Tillagan verður fer síðan til Alþingis verði hún samþykkt af ríkisstjórninni sem gera má ráð fyrir. Hugsanlega þá strax eftir helgi. Við tekur afgreiðsla þingsins, tvær umræður ásamt umfjöllun utanríkismálanefndar.
Viðbúið er að mikil umræða fari fram um málið á Alþingi og óvíst hversu langan tíma hún tekur. Verði þingsályktunartillagan samþykkt þurfa að lágmarki að líða þrír mánuðir samkvæmt lögum þar til þjóðaratkvæðið getur farið fram. Með öðrum orðum gæti hún mögulega farið fram í sumar. Í öllu falli er betra að gera ráð fyrir henni fyrr heldur en síðar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Utanríkisráðuneytið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)

