Stórþingið hafnaði inngöngu í ESB

Mikill meirihluti þingmanna á norska Stórþinginu hafnaði í dag þingsályktunartillögu þingmanna Venstre, systurflokks Viðreisnar, um að ríkisstjórnin hæfi athugun á mögulegri inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Fleiri Norðmenn hafa verið andvígir því að ganga í sambandið en hlynntir í öllum skoðanakönnunum undanfarið 21 ár.

Þingsályktunartillögunni var hafnað með 78 atkvæðum gegn 21 en aðrir þingmenn voru fjarstaddir. Sömuleiðis varatillögu þess efnis að ríkisstjórninni yrði falið að hefja viðræður við Evrópusambandið með það að markmiði að tengjast sameiginlegri öryggis- og varnarstefnu sambandsins nánari böndum og jafnvel taka að fullu þátt í henni.

Tveimur öðrum varatillögum var einnig hafnað. Tillögu um að fela ríkisstjórninni að hefja viðræður við Evrópusambandið um að Noregur félli undir ákvæði Lissabon-sáttmála sambandsins um sameiginlegar varnir og að Noregur sækti um aðild að tollabandalagi þess. Var þeim hafnað með enn meiri mun eða með 91 atkvæði gegn sjö.

Venstre, sem hefur þrjá þingmenn, er ásamt Hægriflokknum og Umhverfisflokknum hlynntur inngöngu Noregs í Evrópusambandið. Aðrir flokkar eru því andvígir henni að undanskildum Verkamannaflokkinn sem myndar núverandi minnihlutastjórn landsins og tekur hvorki afstöðu með eða á móti inngöngu í sambandið.

Hins vegar hafnaði landsfundur Verkamannaflokksins því fyrir tæpu ári að haldin yrði þjóðaratkvæðagreiðsla eins og sú sem til stendur að halda hér á landi. Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og leiðtogi flokksins, hefur ítrekað sagt að innganga í Evrópusambandið sé ekki á dagskrá enda myndi það sundra þjóðinni þegar sízt skyldi.

Fyrir var vitað að meirihluti Stórþingsins væri andvígur inngöngu í Evrópusambandið en það hefur nú verið staðfest í verki. Kosið var síðast til þingsins í september en í Noregi er kjörtímabilið föst fjögur ár. Næstu þingkosningar verða því ekki fyrr en haustið 2029. Það er ári eftir næstu kosningar hér á landi sitji stjórnin út kjörtímabilið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Norski fáninn. Eigandi: Bjørn Erik Pedersen – Attribution 4.0 International)