Meira en heildartekjur ríkissjóðs

Tryggð innlán í fjármálastofnunum á Íslandi námu 1.603 milljörðum króna um síðustu áramót samkvæmt upplýsingum frá Tryggingasjóði vegna fjármálafyrirtækja (TVF) sem nemur hátt í þriðjungi vergrar landsframleiðslu á síðasta ári. Tryggð innlán jukust um 113 milljarða króna frá síðasta ári en þau námu 1.490 milljörðum í upphafi þess árs.

Tryggðar innistæður voru um 1.000 milljarðar króna í byrjun árs 2021 og hafa síðan aukizt um 60% og að meðaltali um 120 milljarða á ári. Til þess að mæta ábyrgðum var aðeins að finna 21,4 milljarða króna í tryggingasjóðnum um áramótin. Tryggðar innistæður nema hærri upphæð en heildartekjur ríkissjóðs á liðnu ári sem voru 1.448 milljarðar.

Komi til þess að ný tilskipun Evrópusambandsins um innistæðutryggingar verði innleidd hér á landi vegna aðildarinnar að EES-samningnum mun það þýða ríkisábyrgð á þessum 1.603 milljörðum króna eins og staðan er í dag. Tilskipunin hefur enn ekki verið tekin upp í samninginn en gerð hefur verið krafa um það og er málið í ferli í þeim efnum.

Hérlend stjórnvöld hafa lagt áherzlu á mikilvægi þess að Ísland fái undanþágu frá ákvæðum tilskipunarinnar um ríkisábyrgð en um leið viðurkennt að ólíklegt sé að hún verði veitt. Fram kom í af­stöðu meiri­hluta ut­an­rík­is­mála­nefnd­ar Alþing­is til málsins árið 2014 að liggja yrði fyr­ir að til­skip­un­in fæli ekki í sér rík­is­ábyrgð áður en hún yrði innleidd.

Með hliðsjón af efni umræddrar tilskipunar Evrópusambandsins er ljóst að hún kveður á um ríkisábyrgð. Þannig segir til dæmis í 10. grein hennar að ríki skuli sjá til þess að tryggingasjóðir séu í stakk búnir til þess að standa við skuldbindingar sínar og tryggja auk þess aðgengi þeirra að fjármögnun til skamms tíma til þess að mæta kröfum.

Fyrri tilskipun Evrópusambandsins kvað ekki á um ríkisábyrgð. Það kom þó ekki í veg fyrir eða þáverandi stjórnvöld í Bretlandi og Hollandi, með stuðningi sambandsins, reyndu að koma Icesave-skuldum Landsbanka Íslands á íslenzka skattgreiðendur. Nýja tilskipunin var í raun svar Evrópusambandsins við sigri Íslands í Icesave-deilunni.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)