Handvaldir með fyrirframgefnar niðurstöður

Fjórir erlendir sérfræðingar voru fengnir til þess að rita skýrslu fyrir ríkisstjórnina um krónuna og mögulega valkosti við hana. Sérfræðingarnir voru handvaldir af Daða Má Kristóferssyni, fjármálaráðherra Viðreisnar, með það fyrir augum að tryggja að niðurstöður skýrslunnar verði mjög gagnrýnar á krónuna í samræmi við sjónarmið flokksins.

Sérfræðingarnir fjórir, þau Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðingur OECD (formaður hópsins), Hilde C. Bjørnland, prófessor við BI Norwegian Business School, Steinar Holden, prófessor við Háskólann í Osló, og Stijn Claessens, hagfræðingur með bakgrunn hjá BIS og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, þykja hafa mjög einsleitan bakgrunn.

Hópurinn hefur að undanförnu fundað með ýmsum hagsmunaaðilum hér á landi og hefur vakið athygli í þeim heimsóknum að sérfræðingarnir virtust með fyrirframgefnar hugmyndir varðandi viðfangsefnið og vera á höttunum eftir upplýsingum sem væru til þess fallnar að styðja þá afstöðu þeirra. Það er að segja að krónan væri ómöguleg.

Spurningar sérfræðinganna hafa þótt vera í þeim anda og eins viðbrögð þeirra við því þegar veittar voru upplýsingar sem voru jákvæðar í garð krónunnar og þar með ekki í samræmi við það sem þeir virtust vera að sækjast eftir. Hefur þetta þótt styðja við þá upplifun ófárra að sérfræðingarnir hefðu þegar verið búnir að taka afstöðu til málsins.

Heimildir Stjórnmálin.is herma enn fremur að fjármálaráðuneytið hafi ekki í hyggju að birta skýrsluna fyrr en skömmu fyrir þjóðaratkvæðið síðsumars í því skyni að lágmarka það svigrúm sem verði til þess að skapa almennilega umræðu um hana og fara ofan í saumana á henni. Verði því borið við að skýrslan hafi ekki verið frágengin fyrr.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra og Valdis Dombrovskis, efnahagsráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)