Kristrún er miklu frekar Steingrímur Joð

„Mjög eðlilega spyr fólk hvað hefur breyst, kannski vill fólk setja þetta saman við það ferli sem síðast átti sér stað en ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir og þetta er ekki ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri grænna eftir fjármálahrunið. Það er önnur staða,“ sagði Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í dag þar sem tilkynnt var um dagsetningu fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um Evrópusambandið.

Hins vegar er Kristrún miklu meira eins og Steingrímur J. Sigfússon, hinn oddviti áðurnefndrar ríkisstjórnar og þáverandi formaður VG. Steingrímur sagði þannig fyrir þingkosningarnar 2009, líkt og Kristrún fyrir kosningarnar 2024, og allt fram á kvöldið fyrir kjördag að ekki stæði til að setja inngöngu í Evrópusambandið á dagskrá eftir þær. Strax eftir kosningarnar samdi Steingrímur hins vegar um það í stjórnarmyndunarviðræðum. Rétt eins og Kristrún.

Hér fyrir neðan má sjá myndskeið af leiðtogaumræðum Ríkisútvarpsins kvöldið fyrir kjördag 2009 þar sem Steingrímur harðneitaði því ítrekað að til stæði að setja inngöngu í Evrópusambandið á dagskrá eftir kosningarnar sem síðan varð raunin nokkrum vikum síðar. Ákveðin kaldhæðni felst annars óneitanlega í því að fréttamaðurinn sem spurði Steingrím var Sigmar Guðmundsson sem nú er þingmaður Viðreisnar og harður Evrópusambandssinni.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)