Hvers vegna þessar blekkingar?

Varla líður sá dagur að forystumenn ríkisstjórnarinnar segist ekki treysta þjóðinni með vísan til fyrirhugaðs þjóðaratkvæðis um það hvort stefnt verði að inngöngu í Evrópusambandið í lok sumars. Á sama tíma hefur fæst af því sem þeir hafa gert í þeim efnum verið til marks um það. Þvert á móti. Fyrsta skrefið var að segja kjósendum fyrir síðustu þingkosningar að ekki stæði til að setja málið á dagskrá með slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu eða slá í og úr í þeim efnum eins og Viðreisn.

Fyrir þingkosningarnar sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og nú utanríkisráðherra, í Spursmálum á mbl.is að slíkt þjóðaratkvæði væri mikil málamiðlun af hálfu flokksins. Venjulega þarf ekki málamiðlun vegna einhvers sem maður styður. Það er að segja ef maður styður það í raun. Eina ástæðan fyrir því að til stendur að halda umrætt þjóðaratkvæði er sú að ekki er meirihluti fyrir málinu á Alþingi. Þorgerður telur þjóðaratkvæði því betri kost en þingið.

Hér koma líka til sögunnar áform ríkisstjórnarinnar um byggja á þingsályktun Alþingis vegna umsóknar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna frá 2009 og halda áfram þaðan sem frá var horfið þrátt fyrir að sú umsókn sé efnislega úreld enda liðin 17 ár síðan hún var send inn. Þar er skírskotað til álits meirihluta utanríkismálanefndar þingsins frá þeim tíma sem byggir á úreldum forsendum. Þorgerður leggur ljóslega ekki í það að sækja sér endurnýjaða heimild til þingsins.

Kvartað yfir klofinni ríkisstjórn

Vert er að hafa í huga í þessu sambandi að einungis er samkomulag á milli ríkisstjórnarflokkanna um að þjóðaratkvæðið fari fram samanber stjórnarsáttmálinn. Ekki liggur fyrir hvað gert verði eftir atkvæðagreiðsluna verði niðurstaðan sú að umsóknarferlið verði hafið á nýjan leik. Helzti akkilesarhæll síðasta umsóknarferlis, fyrir utan andstöðu almennings við inngöngu í Evrópusambandið, var sá að ríkisstjórnarflokkarnir voru ekki samstíga um að ganga þar inn.

Meira að segja fulltrúar Evrópusambandsins sjálfs, sem höfðu það verkefni að fylgjast með umsóknarferlinu, lýstu ítrekað yfir áhyggjum í skýrslum sínum af því að ríkisstjórnin væri ekki einhuga um að ganga í sambandið. Til dæmis Cristian Dan Preda sem var fulltrúi þings Evrópusambandsins í þeim efnum í skýrslu 2012. „Þing Evrópusambandsins ítrekar áhyggjur sínar af pólitískum ágreiningi innan ríkisstjórnarinnar og stjórnmálaflokkanna varðandi inngönguna í það“.

Ferlið gerir ráð fyrir því að umsóknarríki aðlagi sig að allri löggjöf Evrópusambandsins og stjórnsýslu þess samhliða viðræðunum eins og fram kemur á vefsíðu sambandsins. „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“

Er Evrópusambandið þá að ljúga?

Með öðrum orðum þýðir það að bæði ríkisstjórnin og ekki síður Alþingi þarf samhliða viðræðunum að samþykkja innleiðingu umræddrar lagasetningar. Ekki sízt þess vegna skiptir máli að ríkisstjórnin og þingið sé samstíga um það að ganga í Evrópusambandið. Umsóknarferlið er ekki aðeins einfaldar viðræður eins og ríkisstjórnin vill meina heldur umfangsmikið ferli sem getur tekið langan tíma og felur í sér miklar breytingar á bæði löggjöf landsins og stjórnsýslu þess.

Hvers vegna er málflutningur ríkisstjórnarinnar um það hvað felst í umsóknarferlinu á skjön við það sem Evrópusambandið sjálft segir og forystumenn þess? Hvorir eru að segja satt? Ef ríkisstjórnin telur sig vera að segja satt er hún að með því að halda því fram að Evrópusambandið sé að segja okkur ósatt. Eru það þá meðmæli með því að ganga í sambandið ofan á annað? Málflutningur þess er hins vegar í samræmi við reynslu annara ríkja en ekki málflutningur stjórnarinnar.

Dagsetning þjóðaratkvæðisins, 29. ágúst, er sömuleiðis ekki beinlínis til marks um að ríkisstjórnin treysti þjóðinni. Hvers vegna á lokasprettur umræðunnar að eiga sér stað yfir sumartímann þegar fólk er meira eða minna í sumarfríi? Hvað var því til fyrirstöðu að halda það mánuði síðar til dæmis? Hvers vegna liggur svo mikið á að einhverjar vikur skipti máli? Markmiðið er ljóslega að lágmarka svigrúm þjóðarinnar til þess að taka almennilega og upplýsandi umræðu um málið.

Vill ekki upplýsta ákvarðanatöku

Með öðrum orðum er deginum ljósara að ríkisstjórnin treystir ekki þjóðinni til þess að taka upplýsta ákvörðun til málsins. Meðal annars vegna þess að þekkt er að meiri umræða um samrunaskref tengd Evrópusambandinu leiðir gjarnan til meiri andstöðu við þau. Það er þekkt bæði hér á landi og víðar í Evrópu. Blekkingar ríkisstjórnarinnar eru ekki aðeins ömurleg framkoma í garð þjóðarinnar heldur einnig til marks um það að hún veit að málefnastaða hennar er ekki góð.

Við þetta má síðan bæta að í kjölfar skoðanakönnunar sem birt var í janúar og sýndi meirihluta landsmanna andvíga frumvarpi Þorgerðar um bókun 35 við EES-samninginn af þeim sem afstöðu tóku með eða á móti spurði Ríkisútvarpið hana hvort afstaða þjóðarinnar hefði einhver áhrif í þeim efnum. Í spurningunni lá efnislega hvort þjóðin ætti að koma að málinu með einum eða öðrum hætti. Svar Þorgerðar var á þá leið að málið væri of stórt til þess. Hún sem treystir þjóðinni!

Veruleikinn er einfaldlega sá að fátt bendir til þess að ríkisstjórnin treysti í raun þjóðinni og alveg sérstaklega ekki Viðreisn. Þorgerður getur talað sig hása um það hvað hún treysti þjóðinni mikið en það nær vitanlega skammt þegar það er ekki á borði. Við stæðum einfaldlega ekki frammi fyrir þessari þjóðaratkvæðagreiðslu ef meirihluti væri fyrir málinu á Alþingi. Verið er einfaldlega að misnota almennt jákvætt viðhorf fólks til þjóðaratkvæðnagreiðslna í pólitískum tilgangi.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 10. marz 2026)

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)