Þorgerður: Fyrst þarf að laga efnahagsmálin

Forsenda þess að hægt sé að ganga í Evrópusambandið og taka upp evruna er að tekið verði á ríkisfjármálunum og stuðlað að ábyrgri hagstjórn. Þetta var á meðal þess sem fram kom í máli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar og nú utanríkisráðherra, í Forystusætinu í Ríkisútvarpinu 14. nóvember 2024, skömmu fyrir síðustu þingkosningar.

„Við getum ekkert tekið upp stöðugan gjaldmiðil ef það er allt í steik heima hjá okkur. Við verðum að ná tökum á ríkisfjármálunum, ábyrgri hagstjórn,“ sagði Þorgerður. Þetta væri grundvallarforsenda þess að hægt væri að setja inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evru á dagskrá sem fyrr segir. „Við verðum fyrst að ná tökum á ríkisfjármálunum.“

Vitanlega er það hárrétt hjá Þorgerði Katrínu að málið snýst fyrst og síðast um hagstjórnina. Ekki það hvaða gjaldmiðill er notaður. Hins vegar hentar Viðreisn pólitískt að telja fólki trú um að ef tekinn yrði upp annar gjaldmiðill, sem myndi seint endurspegla efnahagslegan veruleika á Íslandi eða taka mið af hagsmunum þjóðarinnar, yrði allt miklu betra.

Hins vegar er það þannig í kokkabókum Viðreisnar að nokkurn veginn allt sem miður fer efnahagslega hér á landi er krónunni að kenna á meðan ekkert slíkt á evrusvæðinu er evrunni að kenna heldur hagstjórn evruríkjanna. Í hvorugu tilfelli er hins vegar gjaldmiðillinn sökudólgurinn heldur fyrst og fremst sú efnahagslega umgjörð sem honum hefur verið sköpuð.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)