Spurning sem ekki er hægt að svara?

Málflutningur harðra Evrópusambandssinna, um að alls ekkert sé hægt að vita um það hvað sé í boði gangi Ísland í Evrópusambandið nema samningur um það liggi fyrir og fyrir vikið ekki hægt að taka afstöðu til þess, er ekki aðeins áhugaverður í ljósi þess að þeir sjálfir hafa fyrir löngu myndað sér afgerandi skoðun á málinu heldur einnig vegna þess að samtök þeirra, Evrópuhreyfingin, hefur ítrekað keypt skoðanakannanir þar sem spurt hefur verið hvort fólk vildi ganga í sambandið. Með öðrum orðum spurningu sem þeir segja ekki hægt að svara án samnings.

Evrópuhreyfingin keypti síðast slíka könnun sumarið 2024. Ekki er lengra síðan. Enn styttra er síðan „áhugafólk um aðild“ að Evrópusambandinu lét gera hliðstæða skoðanakönnun eða í september sama ár. En hvers vegna að eyða verulegum fjárhæðum í að kaupa kannanir sem þessir aðilar segja að ekki sé hægt að svara? Fyrst þurfi að „kíkja í pakkann“ og sjá hvað sé í boði. Vegna þess að þeir vita vel að það er enginn lokaður pakki. Þeir vita að hann er opinn eins og forystumenn Evrópusambandsins hafa ítrekað bent á. En það hentar þeim vitanlega pólitískt að reyna að telja þjóðinni trú um annað.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)