„Ég þóttist bara ekki vera það“

Fyrir þingkosningarnar sendi Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum, fyrirspurn á flokkana þar sem spurt var nokkurra spurninga varðandi afstöðu þeirra til Evrópumálanna. Þar á meðal hvort þeir myndu á næsta kjörtímabili styðja það að tekin yrðu skref í áttina að inngöngu í Evrópusambandið. Til að mynda með þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort sózt yrði á ný eftir því að ganga í sambandið. Svar Flokks fólksins var afdráttarlaust og fólst einungis í einu orði: „Nei.“

Talsvert annað hljóð virtist vera í Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, í kosningauppgjöri Spursmála á Hilton Reykjavík Nordica daginn eftir kjördag. Aðspurð um Evrópumálin sagði hún þannig: „Þetta er náttúrlega bara samningsatriði eins og hvað annað.“ Flokkurinn á nú í stjórnarmyndunarviðræðum við Viðreisn og Samfylkinguna sem báðir eru hlynntir inngöngu í Evrópusambandið þó þeir hafi ekki lagt sérstaka áherzlu eða áherzlu yfir höfuð á málið í kosningabaráttunni.

Spurð hvort hún væri öll að mýkjast upp í þessum efnum svaraði Inga: „Ég hef alltaf verið svona mjúk, ég þóttist bara ekki vera það.“ Hvort Flokkur fólksins hafi þannig einungis þótzt vera andvígur skrefum í átt að inngöngu í Evrópusambandið í kosningabarattunni og í aðdraganda hennar á væntanlega eftir að koma í ljós ef yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræður flokksins við Viðreisn og Samfylkinguna leiða til þess að mynduð verði ríkisstjórn flokkanna.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)