„Til að draga athyglina frá getuleysinu í efnahagsmálunum, á að fara í kosningar um Evrópusambands-aðildarviðræður. Með framsetningu sem ég upplifi sem mikla örvæntingu og að viðkomandi hafi ekki vilja eða þekkingu til að taka málefnalega umræðu um málið,“ ritaði Guðmundur Ragnarsson, fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar, á Facebook-síðu sína í gærkvöld og vísaði hann með því til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns flokksins.
„Ef samningsmarkmið okkar verða ekki sett fram er ekkert að kjósa um. Eða er ruglið svo mikið að stjórnvöld vita ekki hvað þau ætla að semja um?“ sagði Guðmundur enn fremur. Miklu meiri umræða þyrfti að fara fram í þjóðfélaginu um efnahagslega kosti og galla í þeim efnum. „Síðan verður að taka málefnalega umræðu um hvað hluti við þurfum að laga innanlands ef við ætlum ekki að stórskaða okkur efnahagslega. Með vinnumarkaðinn í taumlausu höfrungarhlaupi og fleira.“
Spurði Guðmundur hvernig ætti að vera hægt að trúa Þorgerði í ljósi frammistöðu hennar við að ná niður vöxtum og verðbólgu eins og lofað hefði verið. Framsetningin í Evrópumálunum minnti á tal Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, fyrir síðustu þingosningar um að negla niður vextina með sleggju. „Eins og staðan er í Evrópu í dag tel ég að við höfum ekkert þangað að sækja. Þessa setningu hefði ég ekki sett á blað fyrir tveimur árum.“
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)

