Talsverð umræða hefur farið fram um orðalag Kristrúnar Frostadóttur, forsætisráðherra og formanns Samfylkingarinnar, í samtali við Ríkisútvarpið fyrr í vikunni þess efnis að hún hyggist selja Ísland fokdýrt ef samþykkt yrði í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði að hefja á ný umsóknarferli að Evrópusambandinu. Stuðningsfólk þess að ganga í sambandið hafa sagt að einungis hafi verið um orðalag að ræða en fullveldissinnar að þetta væri það sem innganga fæli í sér.
Kæmi til inngöngu Íslands í Evrópusambandið tæki vægi landsins við ákvarðanatöku innan sambandsins fyrst og fremst mið af íbúafjölda landsins. Á þingi Evrópusambandsins fengi Ísland sex þingmenn af vel yfir 700 sem yfirfært á Alþingi væri á við hálfan þingmann. Staðan yrði enn verri í ráðherraráði sambandsins, valdamestu stofnun þess, þar sem að fullu er miðað við íbúafjöldann en ekki ákveðið lágmark. Þar yrði vægið 0,08% eða á við 5% hlutdeild í alþingismanni.
Fyrirkomulagið í þessum efnum tekur til allra ríkja Evrópusambandsins og mælikvarðinn í þeim efnum er sá sami. Honum verður seint breytt þannig að allt annað gildi um eitt ríki en önnur. Um þetta verður enn fremur ekki rætt í umsóknarferlinu að sambandinu enda ekki hluti af viðræðunum. Með öðrum orðum væri í raun verið að selja Ísland undir vald Evrópusambandsins jafnvel þó einhverjar minniháttar tilslakanir næðust fram sem breyttu þó engu um yfirstjórn þess.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, og Ursula von der Leyen, forsætisráðherra Evrópusambandsins (forseti framkvæmdastjórnar þess). Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)
