Þurfum nei til að verðbólgan minnki

Við erum með sprenglærða hagfræðinga sem bæði forsætisráðherra og fjármálaráðherra. Þau Kristrúnu Frostadóttur og Daða Má Kristófersson. Engu að síður hefur ríkisstjórnin ítrekað tekið ákvarðanir sem hafa aukið verðbólguna í stað þess að draga úr henni þrátt fyrir varnaðarorð. Þar ber hæst ákvarðanir hennar varðandi gjöld á bifreiðar um síðustu áramót sem var helzta ástæðan fyrir stóraukinni verðbólgu sem kunnugt er. Við erum ekki að tala um utanaðkomandi ástæður eða gerðir annarra sem ríkisstjórnin hefur lítið eða ekkert með að gera heldur beinlínis ákvarðanir stjórnarinnar sjálfrar.

Framgangan er með þeim hætti að ekki er einungis hægt að afgreiða hana sem stórkostlega vanhæfni. Fyrir vikið er sífellt erfiðara að afskrifa þann möguleika að beinlínis sé um viljaverk að ræða. Sjálfur vil ég ekki að trúa því enda þá um ömurlegt framferði að ræða í garð þjóðarinnar en þessi möguleiki er hins vegar kominn langt út fyrir það að hægt sé að afgreiða hann einfaldlega sem samsæriskenningu. Pólitíski hvatinn er til staðar. Batni staða efnahagsmála eykur það ekki líkurnar á því að fólk styðji í fyrirhuguðu þjóðaratkvæði „áframhaldandi aðildarviðræður“ við Evrópusambandið.

Verði niðurstaðan sú að sótzt verði á ný eftir inngöngu í Evrópusambandið verður þessi hvati áfram til staðar enda þyrfti þá einnig að fá samning samþykktan. Umsóknarferlið gæti hæglega tekið einhver ár þó Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vilji meina að hægt væri að klára það á einu og hálfu ári. Það var líka fullyrt þegar umsóknin var í gangi síðast. Tæp fjögur ár fóru hins vegar í það og var ferlið ekki einu sinni hálfnað þegar því var hætt. En jafnvel þó Þorgerði yrði að ósk sinni þýddi það eitt og hálft ár í viðbót án þess að unnið væri að því að minnka verðbólguna.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Stjórnarráðshúsið. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)