Fjögur prósent íbúa ríkja Evrópusambandsins sögðust treysta stofnunum þess bezt til þess að takast á við spillingarmál samkvæmt skoðanakönnun sem unnin var fyrir sambandið sem birt var árið 2023. Árið á undan var hlutfallið 5% en í skýrslunum fyrir 2024 og 2025 var hlutfallið komið niður í 3%. Mögulega þarf þetta sáralitla traust almennings í garð Evrópusambandsins í þessum efnum ekki að koma á óvart til dæmis í ljósi þess að spilling hefur verið svo landlæg í stjórnkerfi sambandsins að komið hafa upp spillingarmál í OLAF, stofnun þess sem ætlað er að berjast gegn spillingu.
Mikill meirihluti íbúa ríkja Evrópusambandsins taldi spillingu þrífast í stofnunum þess samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var fyrir sambandið árið 2013 eða 70%. Þar af 84% aðspurðra í Svíþjóð, 82% í Þýzkalandi og 80% í Austurríki. Hliðstætt hafði komið fram árin á undan og farið heldur vaxandi ár frá ári. Viðbrögð Evrópusambandsins voru hins vegar þau að hætta einfaldlega að spyrja um spillingu í stofnunum þess í slíkum könnunum með þeim rökum að almenningur vissi ekkert hvað hann væri að tala um og hefur það ekki verið gert síðan. Áfram var þó spurt um spillingu í stofnunum ríkja þess.
Fjölmargir einstaklingar hafa tekið sæti í ríkisstjórn Evrópusambandsins (framkvæmdastjórninni) á liðnum árum sem verið hafa með dóma á bakinu fyrir spillingu heima fyrir, til rannsóknar fyrir meinta spillingu eða verið sakaðir um slíkt. Það hefur þó ekki komið í veg fyrir að þeir tækju sæti í henni með blessun þings sambandsins. Ríkisstjórnin hefur fyrir vikið oft virkað í gegnum tíðina líkt og skjól fyrir spillta stjórnmálamenn. Meðal annars á þetta við um núverandi forsætisráðherra þess, Ursulu von der Leyen, sem var til rannsóknar fyrir spillingu sem þýzkur ráðherra þegar hún tók við embættinu.
Hvað þing Evrópusambandsins varðar var fjallað um það í evrópskum fjölmiðlum 2024, í aðdraganda kosninga til þingsins sem fram fóru í júní það ár, að fjórðungur þeirra ríflega 700 þingmanna sem sæti áttu á þinginu fyrir kosningarnar, hátt í 200 manns, hefði verið sakaður um ýmis lögbrot og misferli. Þar á meðal um spillingu, fjárdrátt og kynferðislega áreitni. Rannsókn blaðamanna leiddi enn fremur í ljós um árið að fjöldi þingmanna hefði þegið mánaðarlegar greiðslur frá sambandinu til þess að reka skrifstofur í kjördæmum sínum sem voru ekki til í raun. Þeir þurftu aldrei að axla ábyrgð vegna þess.
Milljörðum evra hefur verið varið með óljósum hætti af stofnunum Evrópusambandsins á undanförnum árum samkvæmt skýrslu endurskoðunarsviðs þess. Fram kom í skýrslu sviðsins fyrir árið 2022 að tveir þriðju útgjalda sambandsins hefðu verið berskjaldaðir fyrir misferli með skattfé. Árum saman var bókhald Evrópusambandsins ekki einu sinni samþykkt af sviðinu. Þegar það komst í fjölmiðla fyrir tuttugu árum var brugðist við með því reka þáverandi yfirmann endurskoðunarsviðsins fyrir skort á hollustu eftir að áður hafði verið reynt að fá hann til þess að taka þátt í að fela stöðu bókhaldsins.
Dæmin hér að ofan eru aðeins toppurinn á ísjakanum og ekki einu sinni það þegar kemur að spillingu og öðru slíku í stjórnkerfi Evrópusambandsins. Þessi spilling yrði vandamál okkar Íslendinga ofan á annað ef til þess kæmi að Ísland gengi í sambandið. Með því yrði enda yfirstjórn langflestra okkar mála framseld í hendur stofnana og embættismanna þess. Ekki sízt ríkisstjórnar Evrópusambandsins og þings þess. Tal um að innganga í sambandið væri til þess fallin að draga úr spillingu hér á landi stenzt alls enga skoðun. Spillingin innan þess myndi einfaldlega bætast við þá spillingu sem finna má hérlendis.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Höfuðstöðvar ríkisstjórnar Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, CC BY 4.0)
