Viðreisn farin að kannast við aðlögunarferlið

Framför verður að teljast fólgin í því að forystufólk innan Viðreisnar sé farið að kannast við þá staðreynd að svonefndar „aðildarviðræður“ við Evrópusambandið gangi einkum út á aðlögun umsóknarríkja að regluverki sambandsins í stað þess að halda því ranglega fram að einungis sé um að ræða einfaldar viðræður til þess að „kíkja í pakkann“ og „sjá hvað kunni að vera í boði“ eins og það hefur gjarnan verið orðað í þeirra röðum. Þannig kom fram í pistli eftir Maríu Rut Kristinsdóttur, þingmann flokksins, í Morgunblaðinu 13. marz að eitt af því sem lægi fyrir að hennar mati væri að „áður en ríki ganga í Evrópusambandið eru aðildarviðræður. Þær snúast að mestu um hvernig ríki samræma sig reglum sambandsins.“

Vitanlega hefur verið erfitt að halda öðru fram með sannfærandi hætti enda kemur beinlínis fram á vef Evrópusambandsins í umfjöllun um umsóknarferlið að það gangi fyrst og fremst út á aðlögun umsóknarríkja að bæði regluverki þess og stjórnsýslu. Þá kemur beinlínis fram í greinargerð með þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu að viðræðurnar gangi út á aðlögun þeirra að regluverkinu. Þar segir þannig: „Á það er gjarnan bent að aðildarviðræður við ESB snúist um að ný aðildarríki lagi sig að reglum sambandsins. Má þetta til sanns vegar færa, enda væri Ísland að ganga í ríkjabandalag með fyrirliggjandi reglum.“

Las Þorgerður eigin greinargerð?

Texti greinargerðarinnar er í fullu samræmi við gögn Evrópusambandsins. Til dæmis segir í spurt og svarað um umsóknarferlið á vef þess: „Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið eins og það leggur sig.“ Í viðræðuramma Evrópusambandsins vegna umsóknar Íslands segir:“ Rétt innleiðing Íslands á regluverkinu og framkvæmd þess, þ.m.t. árangursrík og skilvirk beiting af hálfu viðeigandi stofnana á sviði stjórnsýslu og dómsmála, mun ákvarða hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig.“

Mögulega hefur Þorgerður þó hvorki lesið greinargerðina sem fylgdi hennar eigin þingsályktunartillögu né gögn Evrópusambandsins um umsóknarferlið. Eða hún talar gegn betri vitund. Þar með talin þau gögn sambandsins sem lágu til grundvallar umsóknarferli Íslands síðast þegar það var í gangi. Þar kemur skýrt fram að sama skapi að Ísland þurfi að aðlagast regluverki og stjórnsýslu Evrópusambandsins og að þar vanti mikið upp á. Ekki sízt þegar komi að stjórnsýslunni. Var hérlend stjórnsýsla beinlínis afgreidd sem lítil að mati sambandsins og hana þyrfti að stórauka til þess að hún réði við inngöngu í það. Síðast fyrir helgi hélt Þorgerður því fram við Morgunblaðið að aðeins væri um viðræður að ræða.

Viti hvað verið sé að kjósa um

Fyrir vikið er spurningin sem spyrja á í þjóðaratkvæðinu ekki lýsandi fyrir það sem málið snýst einkum um bæði samkvæmt gögnum Evrópusambandsins og greinargerðinni með sjálfri þingsályktunartillögunni sem inniheldur hana en hún hljóðar svo: „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?“ Þarna er dregin upp sú mynd að um einfaldar viðræður sé að ræða þegar reyndin er allt önnur eins og áður er rakið. Ekki er ósennilegt að þar sé komin ástæða þess að ekki var haft samráð við landskjörstjórn um orðalag og framsetningu spurningarinnar í samræmi við kosningalög. Tillagan var heldur ekki í samræmi við lög sett í samráðsgátt stjórnvalda svo almenningur gæti komið með athugasemdir.

Mikilvægt er að kjósendur viti hvað þeir séu að kjósa um í fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Ekki sízt þeir sem mögulega munu segja já við „áframhaldandi aðildarviðræðum“ í þeirri trú að aðeins sé verið að kíkja í pakka sem forystumenn Evrópusambandins hafa ítrekað á liðnum árum sagt að sé þegar opinn. Með „já“-i í þjóðaratkvæðinu felst þannig samþykki fyrir því að hafið verði umfangsmikið umsóknarferli sem miðar að því að öll löggjöf sambandsins verði tekin upp hér á landi, hérlend stjórnsýsla aðlöguð að stjórnsýslu þess og þar með stóraukin og að þetta yrði allt búið og gert þegar kjósendur gætu kosið um samning. Fyrir vikið verður innganga í Evrópusambandið í raun hafin og komin langt á veg með ferlinu.

Fimm prósent af alþingismanni

Fleira kom fram í pistli Maríu. Þannig fullyrti hún að vextir myndi lækka og verðbólga minnka við inngöngu í Evrópusambandið. Lágir stýrivextir á evrusvæðinu eru hins vegar fyrst og fremst afleiðing efnahagslegrar stöðnunar með víðast hvar litlum hagvexti, lítilli framleiðni og varanlegu miklu atvinnuleysi. Tilgangur vaxtanna hefur þannig verið að reyna að koma hjólum atvinnulífsins í gang á nýjan leik sem þó hefur lítið sem ekkert gengið. Vextir til almennings eru þó mjög misjafnir á milli ríkja svæðisins. Ekkert mun hins vegar eðli málsins samkvæmt koma fram um vexti og verðbólgu í mögulegum samningi. Sama á við um matvælaverð sem segir lítið nema horft sé til kaupmáttar og ræðst aðallega af flutningskostnaði.

María sagði enn fremur að Ísland fengi „sæti við borðið“ innan Evrópusambandsins. Vægi þess sætis við ákvarðanatöku þar á bæ færi hins vegar fyrst og fremst eftir íbúafjölda landsins í samræmi við reglur þess. Þannig yrði vægi Íslands í ráðherraráði sambandsins, valdamestu stofnun þess, 0,08% eða á við einungis 5% hlutdeild í einum þingmanni á Alþingi. Þá sagði hún Ísland hafa þegar að mestu tekið upp regluverk sambandsins. Það hefur hins vegar aldrei verið sýnt fram á og samrýmist ekki gögnum Evrópusambandsins. Sjálft hefur sambandið notað orðið „significant“ eða umtalsvert. Ekki einu sinni helming. María talaði enn fremur um misvísandi upplýsingar í umræðunni. Þar mætti hún líta í eigin barm. Og ekki síður Þorgerður.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Birtist áður í Morgunblaðinu 17. marz 2026)

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eigandi: Mfa.gov.ua – Attribution 4.0 International)