Viðbrögð Evrópusambandssinna, þegar bent hefur verið á það að umsóknarferli að Evrópusambandinu feli ekki einungis í sér viðræður heldur gangi það fyrst og fremst út á aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins, hafa verið æði fálmkennd. Enda kemur þetta beinlínis fram í gögnum þess sem og greinargerðinni með þingsályktun utanríkisráðherra um fyrirhugað þjóðaratkvæði. Eitt af því sem gripið hefur verið til er gömul innistæðulaus fullyrðing um að Ísland sé þegar að taka upp nær allt regluverk sambandsins. Tilgangurinn er að reyna að telja fólki trú um að innganga í það væri lítið skref.
Forsaga málsins er sú að 14. marz 2002 lét Halldór heitinn Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, eftirfarandi orð falla í ræðu í húskynnum þýzku hugveitunnar Deutsche Gesellschaft fuer Auswaertige Politik í Berlín: „Through the EEA Agreement we participate in the EU internal market and have taken over about 80% of all its legislation.“ Hófst í kjölfarið umræða um það hvort Ísland hefði virkilega tekið upp 80% af regluverki Evrópusambandsins í gegnum aðildina að EES-samningnum. Halldór hélt því fram en hins vegar fengust engar upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu sem gátu staðfest það.
Vitnuðu einungis í ræðu Halldórs
Fyrir vikið drógu ófáir þá ályktun að Halldór hefði að öllum líkindum misskilið eigin ræðu enda ekki verið samin af honum sjálfum heldur starfsmönnum utanríkisráðuneytisins. Þannig hefði verið átt við að Ísland hefði tekið upp 80% af regluverki innri markaðar Evrópusambandsins, sem EES-samningurinn felur í sér þátttöku í, en ekki sambandsins sem slíks. Hæglega mætti enda skilja ræðutextann með þeim hætti. Það er að Ísland tæki þátt í innri markaðinum og hefði tekið upp 80% af öllu regluverki hans. Þetta gæti vel staðizt enda ættu ekki allar reglur innri markaðarins við hér á landi.
Hins vegar gæti það ekki staðizt að teknar hefðu verið upp tugir þúsunda lagagerða hér á landi frá Evrópusambandsinu. Þó ekki nema vegna þess að regluverkið í gildi á Íslandi teldi aðeins um eitt þúsund lög og um fjögur þúsund reglugerðir. Það kom hins vegar ekki í veg fyrir það að 80% tölunni væri haldið á lofti af hérlendum Evrópusambandssinnum og þar á meðal og ekki sízt fræðimönnum í þeirra röðum. Var jafnvel minnzt á töluna í fræðibókum slíkra einstaklinga en ekki vísað í nein tiltekin gögn því til stuðnings heldur einungis „upplýsingar frá utanríkisráðuneytinu.“ Það er að segja ræðu Halldórs.
Haldreipið huglæg norsk skýrsla
Tekið var þó fram í sumum af þessum fræðibókum að ekkert væri þó hægt að fullyrða um það nákvæmlega hversu mikið af regluverki Evrópusambandsins hefði verið tekið upp hérlendis. Þetta allt varð til þess Sigurður Kári Kristjánsson, þá þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram skriflega fyrirspurn til þáverandi utanríkisráðherra, Davíðs Oddssonar, árið 2005 þar sem spurt var um raunverulega stöðu málsins. Fól utanríkisráðuneytið skrifstofu EFTA í Brussel að gera úttekt á því. Niðurstaða hennar var sú að Ísland hefði tekið upp 6,5% af reglugerðum, tilskipunum og ákvörðunum sambandsins.
Fræðimennirnir og aðrir Evrópusambandssinnar, sem haldið höfðu á lofti 80% tölunni frá Halldóri, lentu í kjölfarið í heilmiklum vanda og voru gerðar ýmsar lítt sannfærandi tilraunir til þess að sýna fram á það að hún ætti engu að síður við rök að styðjast. Málið dó smám saman út í kjölfarið og fór lítið fyrir tölunni næstu árin eða þar til skýrsla kom út í Noregi árið 2012 þar sem hliðstæðri tölu var haldið fram um stöðuna þar í landi. Þetta var gripið á lofti af hérlendum Evrópusambandssinnum. Úr því dró hins vegar eftir að bent var á að miðað við efni skýrslunnar væri einkum um huglægt mat að ræða.
Tekið upp umtalsverðan hluta
Haft var eftir Olli Rehn, þáverandi stækkunarráðherra Evrópusambandsins, í fjölmiðlum eftir að þáverandi ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafði sótt um inngöngu í sambandið 2009 að Ísland hefði tekið upp tvo þriðju löggjafar þess en hann reyndist hins vegar hafa það hlutfall frá hérlendum Evrópusambandssinnum. Í gögnum Evrópusambandsins vegna umsóknarferlisins var eftirleiðis einungis talað um að Ísland hefði tekið upp umtalsverðan hluta regluverks sambandsins í gegnum EES-samninginn (e. significant part). Með öðrum orðum ekki einu sinni helminginn.
Fram kom enn fremur í gögnum Evrópusambandsins vegna umsóknarinnar, eftir að svokölluð rýnivinna hafði átt sér stað af hálfu þess þar sem löggjöf Íslands og regluverk sambandsins var borið saman, að mikið vantaði upp á í þeim efnum auk þess sem fara þyrfti í mikla „stofnanauppbygginu“ hér á landi samhliða viðræðum um inngöngu í það til þess að hérlend stjórnsýsla réði við þær skuldbindingar sem fylgdu henni. Fór ekki á milli mála að mjög mikið vantaði upp á í þeim efnum að mati Evrópusambandsins. Einkum í þeim ófáu málaflokkum sem heyrðu ekki undir EES-samninginn.
„Samkvæmt minni tilfinningu“
Fyrr í mánuðinum, 10. marz, hélt Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar, því fram í ræðu á Alþingi að Ísland hefði tekið upp 75% af löggjöf Evrópusambandsins með skírskotun til orða Gunnars Þórs Péturssonar lagaprófessors í hlaðvarpi Evrópuhreyfingarinnar 22. febrúar. Þar vísaði Gunnar þó aðeins til huglæga matsins í norsku skýrslunni, ekki eigin rannsókna, og bætti svo við: „Þetta er svona nokkurn veginn samkvæmt minni tilfinningu líka.“ Og síðar: „En miðað við það að við séum þegar kannski 70-75%…“ „Tilfinning“ og „kannski“ ríma enda vel við nálgunina í norsku skýrslunni.
Með útspili sínu hugðist Dagur svara Diljá Mist Einarsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, sem spurði hann út í fyrri fullyrðingu hans í þessum efnum. Benti hún á úttekt utanríkisráðuneytisins frá 2018, hliðstæða við þá sem EFTA framkvæmdi 13 árum áður, sem sýndi að hlutdeildin hefði þá verið 13,4%% af regluverkinu. Líklega er hlutfallið komið eitthvað nær 20% í dag en hins vegar óraveg frá 75-80%. Ólíkt norsku skýrslunni var ekki um huglæga úttekt að ræða. Eftir stendur að fullyrðingin um að Ísland hafi tekið upp mikinn meirihluta regluverks Evrópusambandsins stenzt enga skoðun.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Birtist áður í Morgunblaðinu 24. marz 2026)
(Ljósmynd: Fánar aðildarrríkja EFTA ásamt fána Evrópusambandsins. Eigandi: EFTA)
