„Viðræður við Evrópusambandið eru ljóslega þegar hafnar í trássi við þjóðaratkvæðið í lok ágúst!“ ritaði Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, á samfélagsmiðilinn X í gærkvöldi. „Það er ekki nóg að „treysta þjóðinni“ svo notaður sé vinsæll frasi. Einnig þarf að bera virðingu fyrir þjóðinni, vilja fólksins.“ Vísaði hann þar til þess að ríkisstjórnin hefði ljóslega þegar hafið viðræður við sambandið um inngöngu í það áður en umboð til þess frá þjóðinni lægi fyrir.
Með orðum sínum brást Ólafur við færslu Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, þar sem kom fram að hún hefði rætt við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um „sérstakar aðstæður“ Íslands og að viðræðum um forgangsmál landsins yrði flýtt. Spurði Ólafur í færslu sinni hvaða sérstöku aðstæður hefðu verið ræddar. Illa hefur enda gengið að fá ríkisstjórnina til þess að upplýsa um forgangsmál hennar ef umsóknarferlið færi af stað á nýjan leik.
Fyrr á árinu var haft eftir Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í fjölmiðlum að hún hefði mánuðina á undan rætt um mögulega inngöngu Íslands í Evrópusambandið á fjölmörgum fundum með forystumönnum sambandsins. Þá hafa ráðherrar Viðreisnar undanfarna mánuði undirritað ýmis samkomulög við Evrópusambandið sem öðrum þræði hafa falið í sér aðlögun landsins að sambandinu með hliðstæðum hætti og gerð er krafa um að umsóknarríki að því uppfylli.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands. Eigandi: Arctic Circle – Creative Commons Attribution 2.0 Generic)
