Meðal þess sem fylgja mun umsóknarferli að Evrópusambandinu, komi til þess, er stóraukin útgjöld af hálfu hins opinbera líkt og raunin varð síðast þegar sótt var um inngöngu í sambandið. Stór hluti af stjórnkerfinu verður líkt og þá upptekinn vegna ferlisins með tilheyrandi kostnaði og minni forgangi annarra málefna af þeim sökum.
Með þess sem fram kemur til að mynda í gögnum Evrópusambandsins vegna umsóknarinnar síðast er að stjórnsýsla Íslands sé of lítil til þess að ráða við þær skuldbindingar sem fylgja veru í sambandinu. Til mikillar „stofnanauppbyggingar“ þurfi því að koma hér á landi eins og það er kallað í gögnunum. Sem sagt útþenslu hins opinbera.
„Heilt á litið er stjórnsýslan lítil og býr við takmarkaðar fjárveitingar. […] Ísland mun þurfa að byggja upp getu stjórnsýslunnar til þess að taka upp, þýða og innleiða löggjöf Evrópusambandsins og koma á laggirnar öllum þeim nauðsynlegu innviðum sem vera innan sambandsins krefst,“ segir til dæmis í einu slíku skjali Evrópusambandsins.
Fram kemur í gögnum Evrópusambandsins vegna stækkunarmála þess almennt, vegna umsóknar íslenzkra stjórnvalda á sínum tíma og í greinargerð þingsályktunartillögunnar um þjóðaratkvæðið í lok ágúst, að samhliða viðræðunum, sem eru hluti umsóknarferlisins, eigi sér stað aðlögun að regluverki og stjórnsýslu sambandsins.
Viðbúið er að stóraukin útgjöld ríkissjóðs vegna umsóknarferlisins, komi til þess, leiði til aukinnar þenslu og þar með verðbólgu. Verði niðurstaða þjóðaratkvæðisins að farið verði í þá vegferð er ljóst að það muni, ofan á annað, kosta skattgreiðendur háar fjárhæðir sem fjármagna verði með auknum sköttum og niðurskurði til annarra mála.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Íslenzkir peningar. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)
