Meirihluti Norðmanna vill ekki í ESB

Fleiri eru sem fyrr andvígir inngöngu Noregs í Evrópusambandið en hlynntir samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar sem fyrirtækið Opinion gerði fyrir norska dagblaðið Dagsavisen og fréttagáttina FriFagbevegelse eða 51% á móti 33%. Ef aðeins er miðað við þá sem taka afstöðu með eða á móti eru hlutföllin 61% gegn 39%. Mest andstaða miðað við aldurshópa er í röðum þeirra sem eru 30 ára og yngri eða 60% á meðan einungis 19% eru hlynnt því að gengið verði í sambandið. Það gera 76% gegn 24% miðað við þá sem eru annað hvort hlynntir eða andvígir inngöngu í það.

Fleiri hafa verið andvígir inngöngu Noregs í Evrópusambandið í öllum skoðanakönnunum sem birtar hafa verið þar í landi frá því snemma árs 2005 eða í 21 ár samfellt. Þingsályktunartillögu um að norska ríkisstjórnin hæfi skoðun á mögulegri inngöngu landsins í sambandið var felld með miklum meirihluta atkvæða í Stórþinginu nýverið. Minnihlutastjórn Verkamannaflokksins, systurflokks Samfylkingarinnar, er andvíg því að málið verði sett á dagskrá. Landsfundur flokksins hafnaði því fyrir ári að haldið yrði þjóðaratkvæði í Noregi með sama hætti og til stendur hér á landi í lok sumars.

Fátt ef eitthvað bendir þannig til þess að Noregur sé á leiðinni í Evrópusambandið eins og haldið hefur verið fram af hérlendum Evrópusambandssinnum. Á sama tíma halda norskir samherjar þeirra því fram að Ísland sé á hraðleið inn í sambandið. Spurður af Dagsavisen hvort það gæti leitt til aukins stuðnings við inngöngu í Evrópusambandið ef Ísland gengi í það segir Bernt Aardal, prófessor emeritus við Óslóarháskóla og sérfræðing í skoðanakönnunum, við Dagsavisen að í ljósi sögunnar sé engan veginn víst að svo yrði. Þess utan þyrfti margt að gerast áður en Ísland gengi í sambandið.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Norskir fánar fyrir utan konungshöllina í Ósló, höfuðborg Noregs. Eigandi: Maxxii)