Flestir félagsmenn FA vilja ekki í ESB

Meirihluti félagsmanna í Félagi atvinnurekenda er andvígur því að Ísland gangi í Evrópusambandið samkvæmt niðurstöðum könnunar sem gerð var af félaginu á meðal þeirra á síðasta ári. Þrátt fyrir að könnunin hafi verið gerð á síðasta ári hafa niðurstöður hennar ekki verið birtar opinberlega fyrr en í þessum pistli. Heimildir herma að niðurstöðurnar hafi ekki einu sinni verið kynntar félagsmönnum heldur þvert á móti stungið ofan í skúffu af framkvæmdastjóra félagsins.

Miðað við þá sem afstöðu tóku með eða á móti inngöngu í Evrópusambandið í könnuninni voru 69,4% félagsmanna Félags atvinnurekenda andvíg henni og 30,6% hlynnt. Tölurnar ríma vel við kannanir sem gerðar hafa verið á undanförnum misserum til dæmis innan Samtaka atvinnulífsins (67,4% á móti og 32,6% með) og Samtaka iðnaðarins (68,6% á móti og 30,6% með). Þá eru tvö stærstu verkalýðsfélög landsins auk margra minni einnig andvíg því að gengið verði í sambandið.

Heimildir herma enn fremur að slíkar kannanir hafi ítrekað verið gerðar af Félagi atvinnurekenda á liðnum árum án þess að niðurstöðurnar hafi verið birtar ólíkt því sem verið hafi fyrir þann tíma þegar niðurstöðurnar hafi verið aðrar. Komið hefur fram gagnrýni á Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra félagsins, úr röðum félagsmanna meðal annars á þeim forsendum að hann ætti ekki að nýta félagið í þágu persónulegra skoðana sinna um að Ísland ætti að ganga í Evrópusambandið.

Hefur verið rætt um það í röðum félagsmanna Félags atvinnurekenda að trúnaðarbrestur hljóti að felast í því að halda niðurstöðum kannana á vegum félagsins frá félagsmönnum og hvernig það samrýmist hagsmunum þess að halda slíkum upplýsingum frá þeim. Á sama tíma sé hins vegar ljóst að það samrýmist ágætlega persónulegum skoðunum framkvæmdastjórans að setja þær niður í skúffu. Hún eigi þó ekki að ganga fyrir hagsmunum félagsins.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Ríkisfáni Íslands á Þingvöllum. Eigandi: Forsetaembætti Úkraínu)