„Þegar illa gengur vill fólk ganga í ESB“

„Það sem gerist svo ítrekað með Evrópusambandið er þegar það gengur illa, þegar það er komin verðbólga, þegar það eru háir vextir, þá byrjar fólk að vilja ganga inn í Evrópusambandið,“ sagði Kristrún þannig til að mynda í hlaðvarpinu Chess After Dark 27. ágúst 2024. Þetta eru aðrir í ríkisstjórninni vitaskuld ágætlega meðvitaðir um. Þar á meðal bæði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra. Og eins að bætt staðan efnahagslífsins með minni verðbólgu og lægri vöxtum hefur öfug áhrif. Minni áhuga á inngöngu í sambandið.

Verðbólgan jókst í byrjun ársins og fór yfir 5% ekki sízt vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar um ýmis konar skattahækkanir, einkum tengdum bifreiðum, þrátt fyrir ítrekaðar viðvaranir. Mældist hún þannig 5,2% í janúar. Stóð í stað í febrúar og fór síðan í 5,4% í marz. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar sögðust furðu lostnir. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti á dögunum í fyrsta sinn síðan í ágúst 2023. Greiningadeildir spá frekari vaxtahækkunum. Atvinnuleysi hefur að sama skapi aukizt verulega. Hvað gerir ríkisstjórnin? Hún heldur áfram að hækka skatta sem leiða mun til enn meiri verðbólgu.

„Við erum í skrítinni stöðu. Við erum með ríkisstjórn sem vill troða okkur í ESB og maður hreinlega spyr sig hvort ríkisstjórnin sé að reyna að hafa efnahagsmálin hér heima í algjörum ólestri til þess að auka líkurnar á að fólk velji að fara í ESB. Við þurfum að fara rífa okkur í gang hérna heima og taka ábyrgð á okkur sjálf. Það eru engar töfralausnir, og ESB er svo sannarlega ekki töfralausn heldur efnahagslega hnignandi samband eins og allir sjá sem kynna sér málin,“ sagði Daði Kristjánsson fjármálahagfræðingur á Facebook-síðu sinni í kjölfar vaxtahækkunar Seðlabankans.

Mikill pólitískur hvati er einfaldlega fyrir hendi til þess að staða efnahagsmálanna versni og batni ekki. Innganga í Evrópusambandið er í reynd eina eiginlega stefnumál Viðreisnar. Flokkurinn var beinlínis stofnaður í kringum það á sínum tíma. Það er greinilega öllu fórnandi fyrir það. Verði niðurstaða þjóðaratkvæðisins í lok ágúst að stefnt verði að inngöngu í sambandið verður pólitíski hvatinn áfram til staðar enda þarf þá að tryggja að sama skapi að samningur verði samþykktur eftir einhver ár. Eina leiðin til þess að verðbólga fari að minnka er að segja nei 29. ágúst.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra með týndu sleggjuna. Eigandi: Skjáskot af kosningamyndbandi Samfylkingarinnar)