Hefur ekki mótmælt orðum Ólafs

„Fyrrverandi forseti þjóðarinnar fullyrðir að samningaviðræður séu nú þegar hafnar. Ég sé ekki að utanríkisráðherra hafni því og leiðrétti það,“ sagði Lilja D. Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, í samtali við mbl.is í gær. Vísaði hún þar til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og orða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, á samfélagsmiðlinum X síðastliðinn fimmtudag þess efnis að viðræður íslenzkra stjórnvalda við Evrópusambandið um inngöngu í það væru augljóslega þegar hafnar. Var fjallað um ummæli Ólafs í fjölmiðlum fyrir helgi.

„Viðræður við Evrópusambandið eru ljóslega þegar hafnar í trássi við þjóðaratkvæðið í lok ágúst!“ ritaði Ólafur á X. „Það er ekki nóg að „treysta þjóðinni“ svo notaður sé vinsæll frasi. Einnig þarf að bera virðingu fyrir þjóðinni, vilja fólksins.“ Með orðum sínum brást Ólafur við færslu Mörtu Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins, þar sem kom fram að hún hefði rætt við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um „sérstakar aðstæður“ Íslands og að viðræðum um forgangsmál landsins yrði flýtt. Spurði Ólafur í færslu sinni að því hvaða sérstöku aðstæður hefðu verið ræddar.

Haft var enn fremur eftir Lilju í frétt mbl.is í gær að gríðarlega mikilvægt væri að öll gögn varðandi Evrópusambandsvegferð ríkisstjórnarinnar kæmu upp á yfirborðið. „Utanríkisráðherra segir það í erlendum miðlum að Ísland geti verið komið inn á 12-18 mánuðum. Hvernig bakkar hún það upp? Segir hún það eftir samtöl við stækkunarstjóra sambandsins? Það halda allir í Evrópu að við séum á leiðinni inn vegna þess að utanríkisráðherrann talar með þessum hætti.“ Óhætt er að segja að Þorgerður hafi talað erlendis eins og þjóðaratkvæðið væri formsatriði sem hún hefði þegar sigrað.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Marta Kos, stækkunarráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)