„Við segjum nei við ESB“

„Fullveldið er ekki aðeins tákn heldur stjórntæki sem gerir okkur kleift að taka ákvarðanir á eigin forsendum. Það tryggir okkur forræði yfir auðlindum landsins, fiskimiðum, orku og öðrum verðmætum, og gerir okkur kleift að móta eigin efnahagsstefnu,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í setningarræðu sinni á flokksráðsfundi flokksins sem fram fór um helgina. „Saga Íslands af samskiptum við aðrar þjóðir snýst ekki um það hvort við eigum að hafa mikil og víðtæk samskipti við aðrar þjóðir. Hún snýst um það hver skuli fara með ákvörðunarvaldið í þeim samskiptum.“

„Við verðum að ræða Evrópusambandið á réttum forsendum. Aðildarviðræður eru ekki hlutlaust samtal til að sjá „hvað sé í pakkanum“ heldur leið að einni niðurstöðu – aðild að Evrópusambandinu. Með ESB-aðild féllu fiskimiðin undir sameiginlega fiskveiðistefnu sambandsins og ákvarðanir um kvóta og stjórnun fiskistofna yrðu hluti af sameiginlegri ákvörðunartöku innan ESB. Ísland myndi missa sjálfstæða viðskipta- og tollastefnu með aðild að ESB. Landið færi inn í sameiginlegt tollabandalag og viðskiptastefnu sambandsins. Okkar frábæri landbúnaður yrði þá á bjargbrúninni. Ísland gæti ekki lengur haft sína eigin tollastefnu eða gert fríverslunarsamninga við önnur ríki. Slíkir samningar yrðu gerðir af ESB fyrir okkar hönd. Ísland yrði í aftursætinu,“ sagði Guðrún enn fremur í ræðu sinni og uppskar mikið lófatak í salnum.

„Ríkisstjórnin segist treysta þjóðinni en vill ekki gefa henni tíma og raunverulegt færi til umræðu fyrir fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu sem er í raun aðeins yfirvarp. Í stað þess að ræða þetta stóra mál af yfirvegun hefur málflutningur ríkisstjórnarinnar farið í undarlegar áttir. Forsætisráðherra er reyndar í felum og utanríkisráðherra hefur vakið athygli fyrir óvandaðan málflutning. Hún hefur sakað andstæðinga sína um hræðslu og heimóttarskap og sagt að menn eigi einfaldlega að ganga í Evrópusambandið með „kassann út“ eins og hún orðar það,“ sagði hún og áfram:

„Yfirlæti hefur ekki reynst henni góður ráðgjafi. Ef utanríkisráðherra heldur áfram á þessari braut gæti farið fyrir henni eins og froskinum í dæmisögunni sem ætlaði sér að verða jafnstór og uxinn með því að þenja sig út. Við vitum hvernig sú saga endaði. Froskurinn sprakk í tætlur! Sjálfstæðisflokkurinn er skýr. Ísland á ekki að sækjast eftir aðild að ESB. Við eigum hins vegar að sjálfsögðu að eiga gott samstarf við allar Evrópuþjóðir. Ísland á ávallt að eiga síðasta orðið í allri ákvarðanatöku sem snertir auðlindir þjóðarinnar. Ákvarðanir um Ísland á að taka á Íslandi. Við segjum nei við ESB.“

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Eigandi: Sjálfstæðisflokkurinn)