Meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, sagði við fréttamiðilinn Euronews fyrir helgi, aðspurð um fyrirhugað þjóðaratkvæði um Evrópusambandið og hvort á brattann væri að sækja fyrir stjórnvöld, var að niðurstaðan gæti orðið jákvæð ef kosið væri núna. Annað ljóslega að hennar mati ef kosið yrði síðar.
„Þetta verður ekki auðveld vegferð en að lokum verður maður að treysta þjóðinni og trúa á hana. Þetta er frekar jákvætt núna. Niðurstaðan gæti verið jákvæð núna, í dag ef við myndum kjósa. Á hinn bóginn… þú veizt…“ sagði Þorgerður og skipti svo um umræðuefni. Hún sem sagt treystir þjóðinni mögulega til þess að kjósa „rétt“ núna en ljóslega ekki síðar.
Helsta ástæða þess að þjóðaratkvæðinu var flýtt að kröfu Þorgerðar er sú að hún telur tímann ekki vinna með sér. Þannig hefur andstaðan við það að hefja á ný umsóknarferli að Evrópusambandinu aukizt miðað við skoðanakannanir sem valdið hefur henni og skoðanasystkinum hennar miklum áhyggjum. Þjóðinni er sem fyrr segir ekki treystandi síðar.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og Maros Sefcovic, viðskiptaráðherra Evrópusambandsins. Eigandi: © European Union, 2025, licensed under CC BY 4.0)
