Könnunin birt eftir umfjöllun Stjórnmálin.is

Framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, Ólafur Stephensen, birti fyrr í dag niðurstöður könnunar á vef félagsins sem gerð var á meðal félagsmanna þess um Evrópumálin fyrr á þessu ári. Var könnunin birt í kjölfar umfjöllunar Stjórnmálin.is um það að könnun síðasta árs hefði hvorki verið birt né kynnt félagsmönnum þrátt fyrir aukna umræðu um málaflokkinn í þjóðfélaginu eftir að ríkisstjórnin setti hann á dagskrá á nýjan leik með áformum sínum um þjóðaratkvæði í þeim efnum sem nú liggur fyrir að verði í lok ágúst. Hið sama ætti við um kannanir félagsins um málið mörg ár þar á undan.

Fyrr í dag, áður en könnun þessa árs var birt á vef Félags atvinnurekenda, hafði Ólafur samband við undirritaðan og gerði athugasemd við þann hluta umfjöllunarinnar á Stjórnmálin.is að hætt hefði verið að birtar kannanir félagsins um Evrópumál þegar þær hafi farið að sýna fleiri andvíga inngöngu í Evrópusambandið en hlynnta. Benti hann á frétt á vef félagsins frá árinu 2017 um könnun þar sem fleiri voru á móti en með. Niðurstöðurnar þá voru einmitt allt aðrar árið á undan. Könnun ársins 2018 var síðan ekki birt. Könnunin 2019 var birt en síðan ekki meir fyrr en í dag, sjö árum síðar.

Miðað við niðurstöður könnunarinnar á þessu ári eru 72% félagsmanna í Félagi atvinnurekenda andvígir inngöngu í Evrópusambandið en 28% hlynnt ef aðeins er miðað við þá sem tóku afstöðu með eða á móti. Fleiri eru hlynntir því að þjóðaratkvæðagreiðslan fari fram en andvígir en á sama tíma eru fleiri á móti því að hefja aðildarviðræður við sambandið en sem styðja það. Þá eru fleiri andvígir því að taka upp evruna sem gjaldmiðil landsins, bæði einhliða og með inngöngu í Evrópusambandið, og fleiri telja krónuna framtíðargjaldmiðil þess en sem eru því ósammála.

Spurður hvers vegna kannanir fyrri ára hefðu ekki verið birtar gaf Ólafur þá skýringu að ekki hefði þótt ástæða til þess þar sem litlar breytingar hefðu orðið frá fyrri könnunum. Inntur eftir því hvort ekki hefði verið rétt að upplýsa allavega félagsmenn um þær eða hvort þeir ættu aðeins að svara sagði hann þær „fyrst og fremst tæki fyrir skrifstofu og stjórn FA til að bæta þjónustu við félagsmenn og fylgjast með viðhorfum til ýmissa mála.“ Spurður hvort ekki hefði verið rétt að birta niðurstöðurnar allavega á síðasta ári þar sem málið hefði verið komið á dagskrá sagði hann slíkt alltaf matsatriði.

Meðan á þessum samskiptum stóð skrifaði Ólafur og birti frétt um könnun þessa árs. Þess má geta að ég hafði upplýsingar um hana þegar undir höndum. Ólafur hafði áður í samtalinu sagt mér að vegna aukins áhuga á málinu yrðu upplýsingarnar birtar bráðlega. Hins vegar dreif hann í því á meðan við ræddum saman þar sem hann grunaði að eigin sögn að ég hefði þær. Í öllu falli er gott að könnun þessa árs hafi verið birt af félaginu. Hún er í góðu samræmi við niðurstöður kannana til dæmis hjá Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins. Þá er verkalýðshreyfingin einnig á sömu slóðum.

Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur

(Ljósmynd: Fáni Evrópusambandsins. Eigandi: Hjörtur J. Guðmundsson)