Framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar, Snærós Sindradóttir, vakti athygli í þættinum Torgið í Ríkisútvarpinu í vikunni þegar hún sagði kaffibollann í Ungverjalandi ódýran. Hafði hún verið spurð hvað myndi gerast ef hafnað yrði í þjóðaratkvæðinu í lok ágúst að sækjast eftir inngöngu í Evrópusambandið. Sagðist hún þá halda áfram að fara í sund og kaupa sér kaffibolla sem væri að vísu dýr. Erna Bjarnadóttir hagfræðingur benti þá á að kaffibollinn væri líka dýr í Kaupmannahöfn en Danmörk er jú í sambandinu líkt og Ungverjaland. Svar Snærósar var: „Já, en hann er ódýr í Ungverjalandi.“
Hvers vegna vakti svar Snærósar athygli? Vegna þess að þó verðlag sé vissulega mun lægra í Ungverjalandi en hérlendis eru ungversk laun það sömuleiðis. Þannig eru meðallaun í Ungverjalandi næstum þrefalt lægri en þau íslenzku. Laun eru jú ekki annað en verðlag á vinnu. En hvers vegna nefndi Snærós Ungverjaland til sögunnar? Vegna þess að hún bjó þar fyrir skömmu síðan. Þar stundaði hún háskólanám en maðurinn hennar var hins vegar í fjarvinnu sem blaðamaður á íslenzkum launum. Lesa má um þetta í viðtali við Snærós á mbl.is sumarið 2023. Þess má geta að meðallaun ungverskra blaðamanna eru rétt rúmar 200 þúsund krónur á mánuði en meðallaun blaðamanna á Íslandi hins vegar 3-4 sinnum hærri.
Fram kemur einmitt í viðtalinu að þau hjónin hafi getað leyft sér ýmislegt í Ungverjalandi. Leigt sér „flotta íbúð í góðu hverfi“ og síðan fyllt hana af nýjum IKEA-húsgögnum. „Svo eru það skemmtilegu smáatriðin sem er gaman að pæla í, eins og hvaða markaður er bestur til að kaupa rauðvín af nærliggjandi vínekru á krana, hvar við fáum bestu kjörin á góðum ostum.“ Það getur vissulega komið sér vel að hafa íslenzkan kaupmátt í Ungverjalandi en fæstir þar í landi geta hins vegar leyft sér sama munað á þarlendum launum. Verðlag segir enda ekkert eitt og sér nema kaupmáttur launa fylgi með.
Hjörtur J. Guðmundsson
sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur
(Ljósmynd: Kaffibolli í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands. Eigandi: ChatGPT)
